Réttur - 01.07.1928, Blaðsíða 29
Rjettur] ÚR RÚSSLANDSFERÐ 157
hálfsmánaðar sumarleyfi með fullum launum. Þeir,
sem vinna að því, að hreinsa baðmullina og við aðra
slíka vinnu, sem er skaðleg' heilsu þeirra, fá frí í heilan
mánuð á hverju sumri. Sje unnið í ryki og óheilnæmu
lofti, fær verkafólkið á tveggja tíma fresti hálftíma
frí til þess að draga að sjer hreint loft. Verkafólkið fær
að launum 70—80 rúblur á mánuði. Verkfræðingar við
þessa verksmiðju fá 300—350 rúblur, en forstöðukon-
an fær 250 rúblur á mánuði. Við komumst síðar að
raun um að verkalaun eru svipuð þessu í öllu Rúss-
landi, nema laun verkfræðinga. Þau eru sumstaðar því
nær helmingi hærri. Þó sáum við dæmi þess að verka-
fólk fjekk ekki nema 50—60 rúblur. Ákvæðisvinna er
víða, þar sem því verður við komið. — Alt verkafólk-
ið í þessari verksmiðju fær vinnuföt frá verksmiðj-
unni. Andvirði þeirra, er að einhverju leyti dregið frá
laununum, og þau eiga að endast öllum ákveðinn tíma;
fyrr er ekki útbýtt nýjum. Þessi og önnur vinnuskil-
yrði, ásamt launum, eru ákveðin með samningum milli
verkafólksins og stjórnarinnar þ. e. milli verkalýðs-
fjelaganna og iðnaðarhringanna. T. d. eru allir starfs-
menn við vefnaðarvöruverksmiðjurnar í Leningrad og
nágrenni hennar í sama verkalýðsfjelagi, og hinsvegar
eru þær allar sameinaðar undir eina stjórn, vefnaðar-
vöruhringinn í Leningrad, en hann lýtur æðri stjórn,
er situr í Moskva. Okkur þótti munurinn nokkuð mik-
ill á launum verkafólksins og yfirmanna og verkfræð-
inga, og laun verkafólksins heldur lág. En þess ber
að gæta, að þeir, sem minst eru launaðir, njóta í stað-
inn ýmissa hlunninda, greiða t. d. mjög lítið í húsa-
leigu, en lang flest íbúðarhús eru eign ríkisins eða
bæjarfjelaga. í ofangreindri baðmullarverksmiðju var
ekki því við að bera, að fyrirtækið gæfi ekki góðan
arð. Árið sem leið gaf hún hringnum (þ. e. stjórninni)
5 miljónir rúblur í hreinan ágóða, en kaup starfsfólks-
ins var samtals rúmlega hálf önnur miljón. En verka-