Réttur - 01.07.1928, Blaðsíða 35
Rjetturj ÚR RÚSSLANDSPERÐ 163
dýrgripi. Þó var okkur sagt að nokkuð hefði verið selt
til útlanda, þegar hungursneyðin var í Rússlandi, og
keypt matvæli fyrir. —
Við komum á verkfræðingaskóla í nánd við Lenin-
grad. Hann er geysistór og er frá dögum keisarans,
en nú er þar allstaðar mjög þröngt, því að aðsókn að
skólanum er mikil. Er við komum voru flestir í sum-
arfríi. Við hittum þó nokkra stúdenta, sem gátu gert
sig skiljanlega á þýsku, ensku eða frönsku og voru þeir
mjög fúsir á að sýna okkur allan skólann. í þessum *
skóla eru auðvitað »veggjablöð« eins og annarstaðar.
Jeg hefi þegar getið þess, að allstaðar eru myndir af
Lenin og ýmsum núlifandi æðstu mönnum Rússlands
(Stalin, Kalinin o. fl.). En auk þess getur víða að líta
í samkomusölum, kenslustofum, verksmiðjusölum og
annarstaðar, þar sem margt fólk kemur saman, orð
Lenins eða annara kommúnista, máluð með stóru hvítu
eða gyltu letri á rauðan grunn. Eg minnist setninga
svo sem: »Allir kommúnistar eiga að telja sjer skylt
að lesa bækurnar eftir Plekanov« (orð Lenins), og:
»Trúarbrögðin eru ópíum fyrir fólkið (orð Karls
Marx). Fána með áletrunum nota Rússar í stórum stíl,
°ít af prentuðum »ávörpum« (Plakater) eru mestu
kynstur um alt landið. Þau eru af öllum stærðum og
gefur að líta úti og inni og efni þeirra er mjög marg-
breytilegt, en öll eiga þau það sameiginlegt,' að það,
sem þau eiga að segja, er gefið til kynna með myndum,
sem vekja eftirtekt manna og ekki verða misskildar,
en texti er stuttur og kjarnyrtur. f verksmiðjunum eru
slík ávörp, er minna fólkið á að vera aðgætið. Er þar
með agalegum myndum sýnt, hversu hræðilegar afleið-
mgar óvarkárni getur haft í för með sjer. Þar er og
hvatt til hreinlætis, og gefur að líta myndir, er sýna
hinar ferlegustu sóttkveikjur dafna í óhreinindunum.
Mæður eru hvattar til að hafa börn sín á brjósti, og
11*