Réttur - 01.07.1928, Blaðsíða 36
164 ÚR RÚSSLANDSFERÐ [Rjettur
sjer maður þar með eigin augum, hversu stórt og
hraust það barn er, sem nýtur móðurmjólkurinnar, en
hitt magurt og vesælt. Gríðarstór mynd sýnir stóran,
kraftalegan verkamann, í nýjum og vönduðum vinnu-
fötum, benda ræfilslegum og tötraklæddum samverka-
manni sínum á byggingu eina mikla, er fólk streymir
inn í. En á því húsi stendur: Samvinnufjelag. Ávörp
sá eg, er hvöttu bændur til að vinna saman og afla sjer
vjela. Eitt ávarp vakti þó öðrum fremur eftirtekt mína.
Þar gaf að líta hausinn á Chamberlain með einglesi og
pípuhatt, en stór og sterklegur verkamaður stóð og
sló með sleggju mikilli ofan í skallann á honum, gegn-
um hattinn, og stóðu af eldglæringar — eða heilaslett-
ur — í allar áttir. Mjer þykir sennilegt, þó eg viti það
ekki, að þetta ávarp hafi upphaflega komið fram um
það leyti sem enska lögreglan braust inn í byggingu
verslunarfulltrúa Rússa í London, sprengdu upp skápa
þeirra og gerðu húsrannsókn, án þess þó að finna skjöl
þau er þeir sögðust vera að leita að.
Fjelagið »Aviachim«, sem er fjelag þeirra manna,
er mestan áhuga hafa á flugi í Rússlandi og er mjög
margmennt, safnaði þá meðal verkalýðsins andvirði
150 flugvjela, og var sú fjársöfnun alstaðar kölluð:
»Svar okkar til Chamberlains«.
Við höfðam varla fengið tíma til að skoða borgina,
götulífið og bæjarbraginn, þessa þrjá daga, sem við
vorum í Leningrad. Þó höfðum við strax veitt því eft-
irtekt, hversu hrörleg borgin er, götur ósljettar, hús
öll ómáluð, steinhúð fallin af og gluggar -brotnir. Var
að mestu ógert við alt þess háttar, í stórhýsum sem í
smærri húsum. Þó sáum við að mjög víða var unnið
að götuviðgerð og okkur var sagt að nú væri verið að
byggja mörg ný hús og gera við gömul. Við fórum
fram hjá einu afar stóru húsi í smíðum.
Bifreiðir sá maður mjög fáar á götunum í Lenin-
grad, en sporvagnar gengu mjög þjett og voru alt^f