Réttur - 01.07.1928, Blaðsíða 46
174 ÚE RÚSSLANúSFERÐ [Rjettur
Þýskur verkfræðingur, er dæmdist sekur, fjekk skil-
yrðisbundinn dóm.
Saratov hefur um 200000 íbúa og er höfuðborg í
samnefndu fylki. í því fylki búa um þrjár miljónir
manna. Eru þeir af ýmsum kynþáttum. Flestir eru
Rússar, en auk þeirra búa þar Þjóðverjar, Tatarar,
Mordrínar o. fl. Það mun hafa verið Katrín önnur, sem
á seinni hluta 18. aldar flutti inn fjölda þýskra bænda
til Volga-sveitanna, til að láta þá kenna Rússum bú-
skap. Afkomendur Þjóðverja þessara halda ennþá máli
sínu, þótt þeir hafi áður orðið að nota rússneska skóla
og presta. Nú hafa þeir myndað sjálfstætt lýðveldi,
»Volga-deutsche Republik«, innan Sovjet-bandalags-
ins og hafa þýska skóla, þýsk blöð og þýskumælandi
yfirvöld.
Við eyddum einum degi í að skoða nokkur sveita-
þorp í þýska lýðveldinu. Rússar búa þar í þorpum út
af fyrir sig og í þýsku þorpunum búa eingöngu Þjóð-
verjar. Má fljótt sjá að þeir eru yfirleitt mannaðri en
rússnesku bændurnir. Hús þeirra eru stærri og fall-
egri, götur breiðari og beinni en í rússnesku þorpun-
um. Enda eru þeir enn forvígismenn í landbúnaði og
fyrstir til að nota sjer vjelar og koma á stóryrkju. Við
komum í þýskt þorp er »Krasnaja« (þ. e. »hið rauða«)
nefnist. Þar eru 4500 íbúar í 776 bæjum. f þorpsráð-
inu (Dorf-Sovjet) sitja 44 menn; af þeim eru 32
bændur, en hinir verkamenn, kennarar og embættis-
menn. Ráðinu er skift í fjórar deildir, landbúnaðar-,
mentamála-, samvinnu- og sveitastjórnar-deildir. Skól-
ar eru tveir, barnaskóli og unglingaskóli. Fyrir hung-
ursneyðina bjuggu í þessu þorpi 9000 manns. — í
rússnesku þorpi, er við skoðuðum búa 2400 manns. Þar
eru 1250 atkvæðisbærir við ráðstjórnarkosningar, en
58 af fullorðnum mönnum hafa ekki atkvæðisrjett. Það
eru stórbændur (»Kulakkar«, sem hafa vinnufólk í
þjónustu sinni), prestar og vitskertir menn. En þátt-