Réttur - 01.07.1928, Blaðsíða 48
176
ÚR RÚSSLANDSFERÐ
[Rjettur
í Saratov er mjög stór háskóli og fjölsóttur. Hann
var reistur 1909, en var aðeins læknaskóli fram að
byltingunni.Nú eru kent þar, læknisfræði, lögfræði,
uppeldisfræði og hagfræði, eða stjórnmálavísindi.
Kensla fer fram á ýmsum tungumálum, rússnesku,
Þýsku, Mordvinsku o. fl. Er farið eftir óskum og þörf-
um nemendanna í því efni, að svo miklu leyti sem unt
er. Allstórt stúdentaheimili er í Saratov og sjerstakt
samvinnumötuneyti fyrir stúdenta. Þar borða að jafn-
aði 2000 stúdentar. Þeir hafa líka sjerstaka lyfjabúð
og sjúkrastofu.
Frá Saratov fórum við með járnbraut til Moskvu og
dvöldum þar- í þrjá daga. Sumir fóru þaðan um Finn-
land til Svíþjóðar og Noregs, en aðrir um Pólland og
Þýskaland til Danmerkur. Tveir stúdentar urðu eftir í
Moskva. Þeir eiga að semja skýrslu um ferð okkar og
það sem við sáum, en einkum þó um háskólalíf og
stúdenta í Sovjet-Rússlandi.
Eg fór um Pólland til Danmerkur. Þótti mjer Pól-
verjar nokkuð hermenskulegir og ekki einsfriðsamlegir
að sjá eins og Rússarnir. Við landgrmærin og í járn-
brautarlestinni úði og grúði af hermönnum og »offí-
serum«. Þeir skoðuðu farangur okkar mjög vandlega
og tóku af okkui' kommúnistiskar bækur, þýskar og
rússneskar. Voru þær sendar í pósti til Þýskalands og
þar fengum við þær aftur. En við urðum sjálfir að
greiða allan kostnað af því.
Ekki er unt, á svo fljótri ferð sem þessari, að fá að
neinu leyti fullkomna þekkingu á Rússlandi eða rúss-
neskum þjóðarhögum. Við fengum að vísu að sjá alt
sem við óskuðum, ef bara vanst tími til þess. Þektur
danskur ferðalangur, Aage Krarup Nielsen fór um
Rússland árið 1924. Hann segir, að þá voru honum
engar hömlur settar og enginn skifti sjer af því hvar
hann fór. Sömuleiðis sögðu andstæðingar kommúnista