Réttur - 01.07.1928, Blaðsíða 63
Rjettur]
HEIMSBARÁTTAN UM OLÍUNA
19i
náð kaupum á tiltölulega litlu af olíu og enn minni
rjettindum. Sovjetríkið neitar öllum einokunartilboð-
um, og 100000 smálestir brensluolíu er ekki mikill hluti
af ársútflutningi Rússa, sem, eins og fyr er sagt, er á-
ætlaður 2 milj. smál. Standard Oil sýnir með samning-
um þessum, að það hefir hug á að ná samvinnu við
Rússa og það meira en stundarviðskiftum. Hjer sjest
best munur þess og ensk-hollenska fjelagsins. Augljóst
er, að Deterding hefir haldið að New York deild Stan-
dard Oil væri með í sambandi því, sem alheimsauðvald-
ið hafði gert gegn rússnesku olíunni, en í því tekur
New Jersey deild Standard Oil þátt. En New York
deildin hafði engar skyldur í þessu efni, og óvíst er
hversu lengi New Jersey verður með í herferðinni gegn
Sovjet. Einingin í slíkum auðfjelagasamböndum hefir
sjaldan verið á sjerlega háu stigi. Eigi er fjarri að á-
lykta, að New Jersey deildin fylgi bróðurfjelagi sínu
í New York eftir, þar sem bæði eru fjelög þau deildir
sama hrings (Rockefeller).
Samningar Standai’d Oil við Rússa fela heldur ekki
í sjer nokkra ógnun um, að ætlun þess sé að keppa við
Shellfjelagið á Evrópumarkaðinum. Heldur mun ætl-
unin vera að auka söluna í Asíu. Fyrir skömmu síðan
náði Standard Oil í markað á Indlandi. Þrátt fyrir það
að rússneska olían ekki er meira en 5% af olíufram-
leiðslu heimsins, getur olíumarkaðurinn ekki án henn-
ar verið. Hann er enn háðari henni en fyrir stríðið.
Einkum verður þessi raunin á í nágrannalöndum Rúss-
lands, sem njóta hagnaðar af nálægðinni og hægum
samgöngum.
Þetta er í fyrsta sinni síðan sögur hófust, að sosial-
istisk framleiðsla keppir við samkynja auðvaldsfram-
leiðslu á heimsmarkaðinum. Rússneska olían nýtur
þess hagnaðar, sem fæst við skipulag bæði á fram-
leiðslu og sölu og er laus við innri samkepni og skipu-
lagsleysi auðvaldsframleiðslunnar. Þessa munar á so-