Réttur - 01.07.1928, Blaðsíða 80
208 ATHS. MARX VIÐ GOTHASTEFNUSKRÁNA [Rjettuv
leika sína á öllum sviðum að framleiðslukraftarnir
vaxa gífurlega og allir gosbrunnar hinna sameiginlegu
auðæfa flóa yfir barma sína. Þá fyrst er hægt að víkka
hinn þrönga sjóndeildarhring hins borgaralega rjettar
og þjóðfjelagið getur letrað á fána sinn: Sjerhver mað-
ur starfi eftir því, sem hann hefir hæfileika til, og
beri úr býtum eftir því, sem þarfir hans krefja.
Jeg hefi verið langorður um »óskifta vinnuafrakst-
urinn« annarsvegar og »jafna rjettinn« og hina »rjett-
látu útbýtingu« hinsvegár, til þess að sýna fram á
hversu mjög maður vinnur sjer til sektar með því að
hyggjast að neyða upp á flokk vorn hugmyndum og
trúarlærdómum, er á vissu tímabili höfðu innhald og
þýðingu, en er nú ekki orðið annað en úrelt froðu-
snakk; en á hinu veifinu hygst að rugla raunsæisskoð-
un þá, sem aflað hefir verið með miklum erfiðismun-
um, en er nú farin að festa rætur, með vígorðum hug-
sæisstefnunnar um rjett og önnur mál, þeim hinum
sömu vígorðum, sem lýðræðismennirnir og frönsku
jafnaðarmennirnir nota við öll tækifæri.
óháð því, sem nú hefir verið sagt, má geta þess, að
það var með öllu rangt að gera slíkt veður út af út-
býtingunni og að gera hana að aðalatriði.
Skifting neysluafurðanna á hverjum tíma er aðeins
afleiðing af skiftingu sjálfra framleiðsluskilyrðanna.
En skifting þeirra er það, sem einkennir framleiðslu-
hættina. Það sem t. d. einkennir framleiðsluhætti auð-
valdsins, er að hin hlutkendu framleiðsluskilyrði eru
í höndum þeirra, sem ekki vinna, í mynd auðmagns og
landeigna. Hinsvegar á allur fjöldinn ekki annað en
hin persónulegu framleiðsluskilyrði, sem sje vinnu-
aflið. Þegar greinum framleiðslunnar er skift þannig,
er núverandi skifting neysluafurðanna sjálfsögð af-
leiðing. Verði hin hlutkendu skilyrði framleiðslunnar
sameiginleg eign verkamannanna sjálfra, þá er og
breytt skifting neysluafurðanna sjálfsögð afleiðing.