Réttur - 01.07.1928, Blaðsíða 82
210 ATHS. MARX VIÐ GOTHASTEFNUSKRANA [Rjettur
in af framleiðslunni, þau sem borgarastjettin vill við-
halda að eilífu. En ávarpið bætir við: »Miðstjettirn-
ar.... fylgja byltingastefnunni vegna þess að þær sjá,
að þær eru að verða öreigar«.
Frá þessu sjónarmiði er það þvaður, að þær og borg-
arastjettin og meira að segja aðallinn myndi »eina aft-
urhaldsfylkingu« í andstöðu við verkalýðinn.
Hafið þjer sagt við handiðnarmennina, smáiðnaðar-
mennina og bændurna, við síðustu kosningar: Þjer
standið í einni afturhaldsfylkingu með borgurum og
aðli í andstöðu við oss?
Lasalle kunni kommúnistaávarpið utanað, eins og
þeir, sem á hann trúa, kunna sáluhjálparrit hans. Hann
falsaði það svona ósvífið, aðeins til að fegra samvinnu
sína við andstæðingana, einveldismennina og aðals-
mennina, gegn borgarastjettinni.
Spakmæli hans er klest inn í ofannefnda. grein án
nokkurs samhengis við hina afskræmdu tilvitnun úr
lögum alþjóðasambandsins. Hjer er því um einfalda
ósvífni að ræða, sem áreiðanlega finnur náð í augum
herra Bismarcks, eitt af þessum óþokkabrögðum, sem
Marat Berlínarborgar er svo ör á.
5. »Verkalýðsflokkur jafnaðarmanna í Þýskalandi
starfar fyrst um sinn innan takmarka ríkisins, en veit
þó vel að bræðralag allra manna verður árangurinn af
starfi hans, sem er sameiginlegt með verkamönnum
allra menningarlanda«.*
í mótsetningu við kommúnistaávarpið og alla jafn-
aðarstefnu fyrir hans dag, hjelt Lassalle verklýðs-
hreyfingunni innan þröngra þjóðlegra takmarka. í
þessu efni hefir dæmi hans verið fylgt, þrátt fyrir
starf alþjóðasambandsins!
* 1 hinu endanlega formi stefnuskrárinnar er röðinni breytt
þannig að þessi setning- fer á eftir þeirri næstu. En efninu er
í engu breytt.