Réttur - 01.10.1929, Blaðsíða 63
Rjettur] BARATTAN UM HEIMSYFIRRAÐIN
271
manns, og auk þess 95000 manna fasistafjelagsskap,
hina svonefndu »verndarsveit«. Eistland hefir her
14000 manns að tölu, og 25000 manns í hinu borgara-
lega »varnarsambandi«. í Lettlandi er 20000 manna
her og 35000 »verndarliða«, »Aizargi«. Alt eru þetta
fasistafjelög, hinn uppvaxandi borgaralýður, sem tem-
ur sjer vopnaburð til þess að vernda stéttarhagsmuni
borgarastjettarinnar með vopni í hönd og bíður eftir
tækifæri til að ráðast inn í Ráðstjórnar-Rússland.
í Frakklandi eru allir vopnfærir menn herskyldir,
og mestur hluti þeirra gegnir herþjónustu í hinum
fasta her. En þar að auki eru þar um 10000 fjelög, sem
temja mönnum vopnaburð fyrir herskyldualdur. Auð-
valdsstjórnin franska kann að meta þennan greiða og
veitir fjelögum þessum 8,5 miljónir franka styrk á
ári. Á ítalíu eru um 300000 manns í »sjálfboðaliði
þjóðaröryggisins«, og eru það alt saman ómengaðir
fasistar. Þýzkaland, sem var »afvopnað« samkvæmt
Versalafriðnum, hefir aðeins 100000 manna fastan
her, en hernaðarfjelagsskapur er þar mjög mikill, t.
d. »Stahlhelm«-fjelögin, og er í fjelögum þessum um
1 miljón meðlima, sem fá hernaðarlega þjálfun. í Bret-
landi og Bandaríkjunum er sama sagan að segja, þótt
með öðru móti sje. »Hið fjelagsbundna varalið« Banda-
ríkjanna, og hernaðarfjelagsskapur skólasveina Bret-
lands — alt eru þetta þættir í hinum voðalega vígbún-
aði auðvaldsins, sem á eftir að valda stórtíðindum í
heiminum.
Hjer hefir verið gefið nokkurt yfirlit yfir herbúnað
og stríðsundirbúning auðvaldsríkjanna, og tölur þæi'
og staðreyndir, sem hjer hafa verið sýndar, tala ofur-
lítið öðru máli en friðarglamur hinna frakkaklæddu
auðvaldsþjóna Þjóðabandalagsins, sem notað er sem
skálkaskjól til að hervæðast og undirbúa nýja heims-
styrjöld. Þær sýna að grundvöllurinn að nýrri stór-
veldastyrjöld hefir þegar verið lagður, og stjórnmála-