Réttur - 01.10.1929, Blaðsíða 85
Rjettur] STEFNUSKRÁ ALÞJÓÐAS. KOMMÚNISTA
298
borgaralegu byltingar aldir. En vegna þess, hve lönd-
in eru orðin nátengd hvert öðru, fær alþjóðabylting
vei’kalýðsins leyst lilutvei'k sitt á skemmri tíma, og
gerist hún þó alls ekki öll samtímis, heldur nær yfir
heilt tímabil. Þá fyrst er verkalýðurinn hefir sigrað að
fullu, um heim allan, og fest sig í sessi, mun taka við
langt tímabil, þegar unnið verður eirðarlaust að upp-
byggingu hins sósíalistíska heimsbúskapar.
Valdanám verkalýðsins er skilyrði fyrir þróun sósí-
alistískra atvinnuhátta og vaxandi menningu öreiga-
lýðsins. Verkalýðurinn tekur hamskiftum, gerist leið-
togi þjóðfjelagsins á öllum sviðum mannlegrar starf-
semi, dregur aðrar stjettir inn í umbreytingarstarfið
og skapar þannig grundvöllinn fyrir upplausn og út-
rýmingu stjettanna yfirleitt.
í baráttunni gegn ah'æði öreiganna og ummyndun
þeirri á þjóðfjelaginu, sem á eftir kemur og er grund-
völlur öreigaalræðisins, verður til bandalag verkalýðs
og bænda. Verkalýðurinn hefir andlegt og pólitískt
forræði á hendi í bandalagi þessu, sein stofnað er gegn
flokki jarðeigenda og auðmanna. Heildarsvipur milli-
bilsástandsins lýsir sjer í því, að mótspyrna arðráns-
stjettanna er brotin miskunnarlaust á bak aftur, upp-
bygging sósíalismans er skipulögð, stórkostleg um-
breyting verður á mönnum í anda sósíalismans og
stjettaskiftingin þurkast burtu smám saman. Þjóðfje-
lag millibilsástandsins tekur að breytast í kommúnist-
ískt þjóðfjelag, aðeins að svo miklu leyti, sem það
leysir þessi miklu sögulegu hlutverk af hendi.
Alræði Ivins alþjóðlega öreigalýðs er þessvegna hið
nauðsynlegasta og óhjákvæmilegasta skilyrði fyrir því,
að heimsbúskapur auðvaldsins breytist í heimsbúskap
sósíalismans. En alræði þetta getur því' aðeins orðið,
að sósíalisminn sigri í einstökum löndum eða nokkrum
löndum. Alræði öreiganna er nauðsyn á, að hin ný-
stofnuðu verklýðsríki gangi í samband við hin eldri