Réttur - 01.10.1929, Blaðsíða 89
Rjettur] STEFNUSKRÁ ALÞJÓÐAS. KOMMÚNISTA 297
misrjetti þegnanna, sem hvílir á kyn-, trúar- eða þjóð-
ernismismun, undir drotnun arðránsins. í þessum et'n-
um tryggir ráðstjórnarríkið slíkt jafnrjetti, sem
hvergi er til í hinum borgaralega heimi. Og í sama
mund, skapar alræði öreiganna þann efnalega grund-
völl, sem gerir jafnrjetti þessu fært að njóta sín. Má
þar til nefna lausn kvenna úr ánauð og útbreiðsla iðn-
aðar í löndum, sem áður voru nýlendur o. s. frv. RáÖ-
stjórnarlýðræðið er þannig öreigalýðræði, lýðræði hins
vinnandi lýðs, lýðræði gegn arðránsstjettunum.
Ráðstjórnarríkið flettir borgarastjettina vopnum og
færir þau verkalýðnum í hendur. Það er ríki hins
vopnaða öreigalýðs. Hervaldið hvílir hjer á nieginreglu
stjettaskiftingarinnar, eins og alt skipulag öreigaal-
ræðisins, og tryggir iðnaðarverkalýðnum forustuna.
Þetta skipulag, sem hvílir á byltingaraga, er trygging
fyrir hinu nánasta sambandi með hermönnum hins
rauða hers og flota og hinum vinnandi lýð og tryggir
þátttöku þeirra í stjórn landsins og viðreisn sósíalism-
ans.
3. Alræði öreiganna og eignasvifting eignaræningj-
anna.
Hinn sigri hrósandi öreigalýður neytir valds þess,
er hann hefir unnið, sem lyftistangar til þess að ger-
breyta atvinnulífinu, þ. e. bylta um eignarrjettarhátt-
um auðvaldsins í þjóðfjelagshætti sósíalistískrar fram-
leiðslu. Upphaf þessarar stórkostlegu atvinnubylting-
ar er eignasvifting stói'jarðeigenda og auðmanna, þ. e.
umbreyting einkaeignar borgarastjettarinnar í eign
verkalýðsríkisins. í þessu efni fær Alþjóðasamband
kommúnista ali'æði öreiganna þau aðalhlutverk, sem
hjer fara á eftir;