Réttur - 01.10.1929, Blaðsíða 107
líjettur]
NÝ ÓFRIÐARBLIKA
S15
við bætist það, að síðan járnbrautarránið varð, hefir
allur rekstur járnbrautarinnar farið í handaskolum.
Allir sjóðir eru tómir, og járnbrautin hefir orðið að
hætta ferðum að mestu leyti. Fyrir atvinnulíf Mand-
sjúríu er þetta rothögg, því að járnbrautin er lífæð
landsins. Mörgum fyrirtækjum hefir því verið lokað,
geigvænleg kreppa er að koma upp í landinu. Alt hef-
ir þetta vakið megna óánægju meðal borgarastéttar-
innar í Mandsjúríu, sem verður til þess að iosa frekar
um sambandið milli Mandsjúiáu og Nankingstjórnar-
innar. Því var það, að Mukdenstjórnin í Mandsjúríu
lét líklega með að friðmælast við Ráðstjórnar-Rúss-
land á líkum grundvelli og ráðstjórnin hafði krafist í
skeyti sínu til Nankingstjórnarinnar. En þegar Rúss-
land tók vel undir þessar tillögur stjórnarinnar í Muk-
den, sem fram komu 22. júlí, þá tók hún þær aftur!
Nankingstjórnin hafði þá tekið í taumana að boði frá
»hærri stöðum«, og Mukdenstjórnin varð að láta und-
an, þótt hún yrði sér til athlægis og skammar frammi
fyrir alheimi. Þegar svo var komið málum, leyndi það
sér ekki, að stórveldin stóðu að baki gerðum kínversku
valdhafanna. Þann 25 júlí síðastl. sendi Stimpson rit-
ari í utanríkismálaráðuneyti Bandaríkjanna skeyti til
sex stórvelda, um að koma upp sameiginlegum gerðar-
dómi, er tæki kínversk-rússnesku deiluna til meðferð-
ar. Gerðardómur þessi átti að rannsaka orsakir deil-
unnar og skipa svo málum, er hindraði aðrar slíkar
deilur í framtíðinni. »Gerðardómsfrumvarp« þetta er
fyrsta sporið í þá átt, að koma austur-kínversku járn-
brautinni undir alþjóðleg yfirráð auðvaldsins, þar sem
forræðið er í höndum Bandaríkjanna. Með því er þver-
brotinn samningur sá, sem Kína og Ráðstjórnar-Rúss-
land gerðu með sér 1924, þar sem stórveldunum var
enginn kostur gefinn á að hafa nokkur áhrif á austur-
kínversku járnbrautina. Einmitt fyrir þá sök hafði
samningur Kína og Ráðstjórnar-Rússlands stórpóli-