Réttur - 01.10.1929, Blaðsíða 123
Rjettur]
VÍÐSJÁ
331
Leiddi það til þess, að brátt fór norska lögreglan að
gefa honum meiri gaum. Fjekk hann svo einn góðan
veðurdag heimsókn af leynilögreglu, er gerði húsrann-
sókn. Fann hún allmikið af kommúnista-bókmentum
á ensku, þýsku og frönsku og var augljóst, að bækurn-
ar voru sendar frá Noregi til hinna ýmsu landa. Fór
þá ensku stjórninni ekki að lítast á og ljet sendiherra
sinn krefjast þess af norsku stjórninni, að hún ræki
Borodin úr landi. En norska stjórnin þurfti ekki á því
að halda í þetta skifti að sýna þrællyndi sitt við Eng-
lendinga. Borodin yfirgaf landið af frjálsum vilja og
hjelt heim til Rússlands yfir Stockholm.
En Borodin gafst samt ekki upp við að hafa áhrif
á ensku verkamennina og hjelt nú næst til Englands
sjálfs. Kallaði hann sig nú George Brown. Tókst hon-
um nú að komast til aðalverklýðsborganna í Suður-
Wales og Skotlandi og dvelja þar og »agitera«. Að lok-
um var hann þó tekinn fastur í Glasgow og dæmdur
í sex mánaða fangelsi fyrir að hafa, sem útlendingur,
unnið að útbreiðslu kommúnismans í Englandi. Er
hann hafði setið af sjer hegninguna, var hann gerður
landrækur og fór nú heim, á einu af skipum »Arcos«.
Svo bar við nokkru síðar, að þáverandi hershöfðingi
Kantonhersins, Tsang-Kai-Tsek, sem síðar sveik kín-
verska verkalýðinn svo hrapallega, kom til Moskva til
að Ijúka við hernám sitt. Hitti hann þar Borodin og
urðu þeir brátt góðir vinir. Áttu þeir og margt sam-
eiginlegt, fyrst og fremst þó, að berjast gegn yfir-
gangi og kúgun Breta. Annar maður sá þó ennþá bet-
ur hvað í Borodin bjó og að hverjum notum hæfileikar
hans gætu orðið kínversku byltingunni. Það var Sun-
Yat-Sen, hinn mikli byltingarforingi. Fyrir beiðni
hans og tilboð kom Borodin til Kanton til að undirbúa
herferðina gegn enska drotnunarvaldinu og þjónum
þess í Kína, herferðina, sem leiddi til hinna miklu sigra
Suðurhers Kantonmanna að lokum. Þar hefir hann