Réttur - 01.10.1929, Blaðsíða 126
334
VÍÐSJÁ
[Rjettuv
innlent og erlent auðvald í sameiningu hefir beitt síð-
ustu árin.
David Buick,
stofnandi Buick Motor Compagny, býr nú í Detroit,
blásnauður og gleymdur af öllum. Nafn hans finst. á
meira en tveimur miljónum bifreiða víðsvegar um
lönd, en sjálfur hefir hann hvergi nærri efni á að eiga
eina. Hann er næstum 74 ára að aldri og vinnur fyrir
sjer með tímakenslu við verslunarskóla einn.
— Mjer var nauðugur einn kostur, að vinna, annars
beið mín ekkert nema hungrið, sagði hann við blaða-
mann einn, sem hafði tal af honum nýlega.
Buick er Skoti að uppruna og kom til Detroit fertug-
ur að aldri. Þar reisti hann járnvöruverksmiðju litla.
Honum reyndist brátt ílutningur á hestum vera of dýr
og hóf því að fást við mótorsmíði. Er hann árið 1908
hafði fundið upp nýjan mótor, stofnaði hann, ásamt
W. C. Durant »The Buick Motor Compagny«.
— Það voru erfið ár, sagði hann enn fremur. í sjö
ár samfleytt unni jeg mjer engrar hvíldar. Allir dagar
bæði helgir og virkir voru mjer jafnir. Ekki einu sinni
um jólin var nokkra hvíld að fá. Jeg vann þá 12, 16
eða jafnvel 18 stundir í sólarhring.
Árið 1910 varð hann veikur og ófær til vinnu. Hann
neyddist til að fara til Kaliforníu sjer til heilsubótar.
Til þess að það væri kleift, varð hann að selja hluti
sína í »Buick Motor Compagny. Hefði hann átt þá á-
fram, væri hann nú miljónamæringur.
— Jeg hefi heimsótt næstum alla vini mína frá þeim
tíma — þeir eru nú allir miljónaeigendur — og beðið
þá um atvinnu, en enginn þeirra hefir haft nokkuð
handa mjer að vinna. Jeg æski ekki meðaumkunar eða
brjóstgæða. Ennþá er jeg vinnufær, en það er hart
J'yrir mann á mínum aldri að eiga enga örugga fram-
tíð og því verð jeg að fá mjer fasta atvinnu. Std. þýddi.