Réttur


Réttur - 01.06.1943, Síða 29

Réttur - 01.06.1943, Síða 29
KÉTTUK 105 byggja ríki með nýju sniði og urðu að verja þessa hrjúfu bygg- ingu með vopn í hönd gegn árásum erlendra og innlendra fjand- manna. Jörð allrar Evrópu brann undir fótum valdhafanna, fæð- ingarhríðir byltingarinnar voru miklar og örðugar. í nýlendunum ólgaði og sauð, í ánauðugum ríkjum Asíu reis alda þjóðfrelsisbar- áltunnar úr kyrrahafi austrænnar ládeyðu. Alþjóðasamband kommúnista sameinaði frá upphafi þessa tvo strengi í móðu bylt- ingarinnar. Það sameinaði stéttarbaráttu þroskaðasta hluta verka- lýðsins í auðvaldslöndum Evrópu og Ameríku og frelsis- og sjálf- stæðisbaráttu undirokaðra nýlenduþjóða. Þótt ár og aldir líði mun þessarar pólitísku konungshugsunar Alþjóðasamhandsins jafnan verða minnzt. Vonir þær, sem höfundar Alþjóöasambands kommúnista höfðu gert sér um sigursæla sósíalíska hyltingu í Evrópu, rættust ekki. Innviðir hins borgaralega þjóðfélags reyndust traustari áhlaupa- mætti þeirra, er að sóttu. Heimur auðvaldsins skreið saman aftur og sleikti sár sín, örfá veltiár nægðu til þess að vekja mönnum þá tálsýn, að auðvaldsskipulagið mundi eiga miklu langlífi að fagna, að það mundi vaxa að velmegun, vizku og mannúð með ellinni, að hinn syndugi öldungur mundi nú loks láta undan töfr- um hreinlífisins. Annað alþjóðasambandið og flokkar þess voru formælendur þessara tálvona. En Alþjóðasamband konnnúnista þreyttisl aldrei á að brýna það fyrir flokkum sínum og alþýðu alls heims, að velmegun auð- valdsskipulagsins væri sjónblekking, stundarfyrirbrigði, er bráð- lega mundi hverfa, að öldungurinn hefði ekki hrakið syndina úr liinu hruma holdi sínu. Á þessum árum lærðu kommúnistaflokk- arnir að starfa á meðal múgsins, þótt þeir hefðu storminn í fangið. Árið 1928 sagði 6. þing Alþjóðasambands kommúnista það fyrir, að atvinnuleg kreppa væri í nánd, að hin pólitísku átök stéttanna mundu færast í aukana, að hagsmunatogstreita stórveldanna mundi harðna, að ný byltingaralda mundi rjsa úr hafi og styrjaldarhætt- an svífa að í annaÖ sinn. Þetta þóttu firn mikil og hrakspár. Hví- líkt brjálæði, að spá gjörningaveðri þegar hvergi sást ský á himni! En ári síðar, haustið 1929, skall heimskreppan á og gerði að engu

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.