Réttur


Réttur - 01.06.1943, Page 31

Réttur - 01.06.1943, Page 31
H É T T U K 107 okkar öld. Það hefur alið upp flokka um heim allan, sem þrátt fyrir mörg mistök, ósigra og villur rnunu að stríðinu loknu eiga stærstan þátt í sköpun djarfrar og markvissrar verkalýðshreyfing- ar, er gengur ekki fálmandi að dagsverki sínu eins og raun varð á eftir hina fyrri heimsstyrjöld. Þeir munu þá mega minnast hins stranga en lærdómsríka skóla Alþjóðasambandsins. Alþjóðasam- band kommúnista var að vísu harðhent fóstra, en kommúnistar vita, að enginn verður óbarinn biskup og vegurinn til sögulegrar vígslu er langur og erfiður. Um sögu þessa aldarfjórðungs, er Alþjóðasamband kommúnista starfaði, mætti viðhafa orð liins enska byltingarmanns 18. aldar, Thomasar Paines, þau er hann skrifaði í frelsisstríði Bandaríkj- anna: These are the times that try men’s soul — þessir tímar reyna á mannssálina. í verkalýðshreyfingunni hafa á þessu tímabili skipzt á sigrar og ósigrar. Alþjóðasamband kommúnista hefur átt þátt bæði í sigrunum og ósigrunum; saga þess verður ekki skrifuð með vísindalegu hlutleysi fyrr en fargi þessara tíma hefur verið létt af mönnunum og öldur hinna pólitísku ástríðna hefur lægt. En svo mikið má fullyrða nú þegar, að Alþjóðasamband kommúnista hefur komið verkalýðshreyfingu alls heims til nokkurs þroska. Sverrir Kristjánsson.

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.