Réttur


Réttur - 01.06.1943, Page 41

Réttur - 01.06.1943, Page 41
RÉTTUR 117 lægnislega og ón óþarfa hátíðleiks: „Að markmiði mínu verð ég að stefna, hvernig sem viðrar; ég má ekki láta viðgangast að borgara- þjóðfélagið breyti mér í peningaframleiðsluvél.“ í stað Hefaistos- fleyga meitlaði þessi Promeþeifur i hengiflugunum harðan vilja, sem með öryggi segulnólarinnar benti á göfugasta markmið mann- kynsins. Allt eðli hans er sveigjanlegt stál. Ekkert getur aðdáunar- verðara en þegar Marx, oft í sama bréfinu, sýnilega beygður af sárustu eymd, rís af furðulegu fjaðurmagni til fangbragða við hin erfiðustu úrlausnarefni, með sálarró hugsuðs er lifir fjarri öllum veraldaráhyggj urn. En Marx var ekki tilfinningarlaus fyrir höggum þeirn er á hon- um dundu í ofsókn borgaraþjóðfélagsins. Það væri heimskulegt kaldlyndi að hugsa: Ilvað saka þjáningar slíkar og þær er Marx varð að þola, einmitt snillinginn, sem aldrei er metinn að verðleik- um hvort sem er fyrr en af eftirkomendunum? Jafn hégómleg og sú skriffinnska er, sem miðast við það eitt, að sjást helzt daglega á prenti, jafn nauðsynlegt er það hverjum skapandi anda að vinna þróun sinni nægilegt svigrúm og öðlast nýtt þrek til nýrrar sköpun- ar af því bergmáli, sem hún vekur. Marx var ekkert dyggðablóð eins og þau gerast í lélegum skáldsögum og leikritum, heldur lífs- glaður maður í Lessingsniðum, og því hvarflar einnig að honum sú kennd, er Lessing minnist á, er hann ritar frá banabeði bezta æskuvini sínum: „Ég held jrú jrekkir mig ekki að Jrví að æskja eftir frægð. En þótt sá kuldi, er heimurinn notar til að hegna mönnum, sem ekki meta hann að verðleikum, deyði sjaldnast, nægir hann til þess að maður stirðni.“ Það er sama beizkjan og í orðum Marx rélt fyrir fimmtugsafmælið: Hálf öld að baki og enn blásnauður! Og eitt sinn óskar hann sér hundrað faðma niður í jörð fremur en halda áfram að skrimta eða er það brýzt úr brjósti hans eins og örvæntingaróp, að hann vildi ekki vita versta óvin sinn lenda í þeirri ófæru, sem hann hefði setið í síðustu átta vikurnar, — og jafnframt var liann sárreiður að vita gáfur sínar ganga til Jrurrðar og starfsorkuna minnka í baráttunni við Jrennan hégóma. Marx varð samt aldrei neinn „bölvaður ræfill“ eins og hann titl- aði sjálfan sig einhverntíma, og því gat Engels sagt með réttu. að

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.