Réttur - 01.06.1948, Qupperneq 51
RÉTTUR
139
líða að flytja þessari hálLv. déild þá orðsendingu frá fyrrverandi
forseta efri deildar, fyrrverandi nteðnefndarmanni mínum, Guð-
mundi Björnssyni landlækni, eftir beinum tilmælum hans, að hann
geti ekki skoðað þetta öðruvísi en föðurlandssvik."
... Því næst gerir Jón grein fyrir skoðunum sínum og Guðmund-
ar Björnssonar og segir svo:
„Við höfðum og höfum enn trú á Jiví, að sá tími kotni, að unt
verði að ráða fram úr þeirri fjárhagslegu þraut að nota vatnsorkuna
fyrir ljósgjafa og hitagjafa handa landsmönnjlm, og við förum fram á
það, að löggjafarvaldið sýni þá framsýni að taka Lillit til nauðsynj-
arinnar á þessum framkvæmdum og leggja ekki stein í götu þeirra.
og við förum fram á Jrað, að þeir jarðeigendur, sem kynnu að hafa
gert sér von um að geta selt einhver vatnsréttindi, sleppi Jreim von-
ttm vegna nauðsynjar eftirkomendanna."
Þetta voru orð Jóns Þorlákssonar.
C)g á þessu þingi fór svo, að ein breytingatillagá þeirra
Jóns og Bjarna var samþykkt, einmitt um að tryggja ríkinu
virkjunarvaldið, svo þeir urðu með frumvarpinu sent sátta-
leið, en Sveinn í Firði varð á móti. Lauk því fossamálinu á
Alþingi eftir allar þessar liörðu og löngu deilur með sam-
komulagslögum, er hindruðu hin erlendu auðfélög í að
virkja fallvötnin, en létu liins vegar eignarrétt þeirra hald-
ast. Og þar við situr enn. Síðan eru liðin 25 ár. En hætta sú,
sem þá var slegið á frest fyrir harða baráttu framsýnna og
þjóðhollra manna, vofir nú yfir í nýrri mynd, ólíkt ægilegri,
en um leið betur dulbúin en fyrrum.
Nú verða það ekki smáfélög eins og „Títan“ eða „ís-
land“, sem reyna að klófesta auðlindir fallvatnanna, heldur
voldugustu auðhringar heims. Og þar sem áður þótti allt
örugt, ef valdið til virkjunar og veitingar sérleyfa væri í
höndum landsstjórnarinnar, en forðað undan valdi erind-
reka fossafélaganna, þá stefna nú erlendir auðdroftnar
svo hátt að ætla að gera sjálfa ríkisstjórn hins nýstofnaða
íslenzka lýðveldis að' erindreka sínum til þess að leppa þau
yfirráð, sem þeir hyggja á að ná yfir framtíðarauðlindum
landsins. Verður nánar að þessu vikið síðar.
Sú kynslóð stórhugans, sem um aldamótin dreymdi