Réttur - 01.01.1949, Síða 98
98
RÉTTUR
aota til eflingar fiskiræktar, í sambandi við áveitur, til fram-
leiðslu raforku og til þess að viðhalda hæfilegri vatnshæð
í jarðveginum.
7. Til þess að hrinda þessari margbreytilegu áætlun í fram-
kvæmd, þarf að smíða margskonar vélar af nýjum og sér-
stökum gerðiun. Fjármálaráðuneytið veitir samyrkjubúrmmn
tíu ára lán til vélakaupa, og hefjast fyrstu afborganir ekki
fyrr en fimm ánxm eftir lántöku. Þannig ætti fjárhagshlið
áætiunarinnar ekki að leggja alvarlegar byrðar á herðar hvers
ráðstjórnarbónda.
Skógarbeltisstöðvar
Fyrir 1951 á ennfremur að koma upp 570 skógarbeltisstöðv-
um, búnum stórvirkum vélum, m. a. skurðgröfum, heflum,
jarðýtum, sáningarvélum fyrir trjáplöntur, útungxmarvélum,
tank-bílum, tíu hjóla flutningabifreiðum, verkstæðisbifreiðum,
rafsuðuáhöldum, o. s. frv. Þessar stöðvar munu ásamt dráttar-
vélastöðvunum annast samningsgerðir við hlutaðeigandi sam-
yrkjubú um hinar ýmsu framkvæmdir, svo sem undirbúning
landsins, plöntun og uppeldi trjánna, gerð tjarna og vatns-
miðlunarstöðva o. s. frv. Samyrkjubúin leggja til starfsfólk,
sem fyrst lærir að fara með hinar ýmsu vélar og tekur síðan
að sér umsjón með verkinu. Þetta er I stuttu máli hin risa-
vaxna áætlun fyrsta sésíalistaríkis veraldarinnar um nýsköpun
landbúnaðarins, gerð í því skyni að vinna sigur á þurrkinum,
„hinum forna fjanda mannkynsins". Ráðstjómin heldur því
fram, að einungis sósíalistískt hagkerfi sé fært um að beizla
orku fólksins og virkja auðlindir landsins til svo stórfelldra
átaka á friðartímum, að til blessunar leiði fyrir allt mann-
kynið.
Verndun lands í Bandaríkjunum
I Bandaríkjunum er þörfin engu síður brýn að skipuleggja
vemdun landsins og nýtingu náttúruauðæfa vorra. Því enda