Réttur - 02.05.1950, Side 38
HILARIMINC
SEX-ÁRÁ ÁÆTLUN
fil að skapa undirsföðu þjóðfélags sósíalismans
í Póllandi
Hilary Minc er í framkvæmdanefnd sameinaða
verkalýðsflokksins pólska og iðnaðarráðlierra Pól-
lands. Þetta er ræða, er liann flutti á þingi l'lokksins
í ár.
Meginstefna áætlunarinnar.
Við teljum það höfuðstefnuatriði þessarar áætlunar, að leggja
undirstöðu að uppbyggingu sósíalismans í Póllandi. En hvers
vegna tölum við um að leggja undirstöðu sósíalismans, en ekki
um að koma á sósíalisma?
Að koma á sósíalisma er að afnema skiptingu þjóðfélagsins í
fjandsamlegar stéttir, en það jafngildir því að uppræta auðvalds-
öflin og þær uppsprettur, sem geti alið þau af sér á ný. En með
því að vitað er, að vöruframleiðsla smáframleiðenda fæðir af sér
auðvald, verður að byrgja brunninn, en til þess þarf að breyta
henni algerlega í sósíaliska framleiðslu. Og slíkt verður að gerast
af frjálsum vilja. Þetta verður ekki framkvæmt á einum sex ár-
um. Því er það, að meginstefna 6 ára-áætlunar hnígur að því að
leggja undirstöðu að sósíalisma, en ekki að koma honum þegar á.
Hvernig verða nú þessar undirstöður sósíalismans lagðar í
landi okkar?
Sósíalismi byggist á þróun framleiðsluaflanna og hærra stigi.
Auðvaldsherrar, pólskur jarðeignaaðall og erlendir innrásarsegg-
ir eiga sök á því, að Pólland er aftur úr í atvinnulegum efnum,