Réttur - 02.05.1950, Blaðsíða 39
RÉTTUR
119
framleiSsluöfl þess ekki nægilega þróuð. Til þess aS koma á sós-
íalisma í Póllandi þarf aS vinna bug á frumstæSi atvinnulífsins
og auka framleiSsluöflin mjög verulega.
Til þess aS leggja undirstöSu aS sósíalisku þjóSfélagi verSur og
aS beina þróun framleiSsluaflanna inn á ákveSna braut, þannig
aS hún stySji sem mest sósíaliska þætti í þjóSarbúskap okkar,
en stefni aS afnámi auSvaldsaflanna. Nú er vöruframleiSsla smá-
framleiSenda sífelld uppspretta auSvaldsafla, og verSum viS því
aS haga eflingu framleiSsluaflanna svo, aS hún geri okkur hægra
um vik aS breyta þessari framleiSslu í sósíaliska framleiSslu sem
fyrst. En til þess þurfum viS tæknilega og efnalega undirstöSu
sem fæst einungis fyrir aukningu framleiSsluaflanna.
Þótt lagSur sé grunnur aS uppbyggingu sósíalismans, hafa
auSvaldsöflin þar meS enn ekki veriS aS fullu upprætt, en þaS
dregur mjög úr hlutverki þeirra og mikilvægi í þjóSarbúskap
okkar. ÞaS er um þaS aS ræða, að haga svo verkum, að auðvalds-
öfl hafi ekki framar úrslitaáhrif í nokkurri atvinnugrein okkar.
Sem stendur eru þau þung á metunum — t. d. í landbúnaðinum
— og hafa oft mjög mikil áhrif á markaðsmálin, enda þótt þau
ráði ekki meiri hluta framleiðslunnar.
Sköpun undirstöðu sósíalismans í Póllandi verður því að hald-
ast í hendur við rýrnandi hlutverk auðvaldsaflanna jafnt í verzlun
og landbúnaði sem iðnaðinum. Þannig verður að koma í veg
fyrir, að þau gegni einhverju meginhlutverki og geti haft veru-
leg áhrif á hagþróun landsins.
Við skulum nú draga saman niðurstöðurnar.
Til þess að leggja undirstöðu aS sósíalismanum þarf eftirfarandi:
1) Verulega aukningu framleiðsluaflanna, og sé lögð megin-
áherzla á framleiðslu framleiðslutækja.
2) Skerðing á auðvaldsöflunum, að þau hafi ekki framar úrslita-
áhrif á nokkra grein iðnaðarins.
3) Gera verður verulegt átak til að fá smáframleiðendur til að
taka upp sósíaliska framleiðsluhætti af frjálsum vilja, og stífla
þannig smám saman þá uppsprettu, sem elur af sér auð-
valdsöflin.