Réttur - 02.05.1950, Síða 43
RÉTTUR
123
hópa, sem verði þannig virkisborgir í baráttunni fyrir sósíalism-
ann.
Þess vegna er svo ráð fyrir gert, að um tveir þriðju þeirra
300.000 verkamanna, sem áætlað er að starfa muni við hin nýju
iðjuver 6 ára-áætlunarinnar, vinni í þeim héruðum, sem hafa orð-
ið útundan til þessa.
Iðnaðarþróunin í Varsjá, höfuðborg landsins, er viðfangsefni
út af fyrir sig. Verkalýður Varsjárborgar á sér frægar erfðavenj-
ur, — mikla byltingarsögu — og Varsjá á að verða borg verka-
lýðsins. Því munu hinar fornu og sögufrægu verksmiðjur borgar-
innar verða endurreistar og ný fyrirmyndar iðjuver byggð, stærst
þeirra verður bílaverksmiðjan. Varsjá ásamt nærsveitum mun
verða mikil miðstöð málm-, rafmagns- og fataiðnaðar. Tala iðn-
aðarverkalýðs Varsjárborgar mun 2,7% af öllum iðnaðarverka-
lýð landsins árið 1955 — í stað 0,9% 1949.
Meginstefna áætlunarinnar í landbúnaðarmálum.
Höfuðmarkmið 6-ára-áætlunarinnar er að efla iðnað landsins.
Það er því auðsætt, að mikilvægi iðnaðar og iðnaðarframleiðslu
eykst, en jafnframt dregur úr hlutfallslegri þýðingu landbúnaðar
og landbúnaðarafurða. Landbúnaðurinn hlýtur að þróast hægar
en iðnaðurinn, en þó svo, að hann geti séð íbúum landsins, —
einkum borgarbúum, fyrir nægum matvælum — og iðnaðinum
fyrir þeim hráefnum, sem um er að ræða. Þá verður hann og að
tryggja ákveðið framleiðslumagn landbúnaðarafurða til útflutn-
ings.
Iðnaðarframleiðslan mun vaxa um 85—95% á þessu sex ára
tímabili. Og til þess að það reynist kleift, verða afköst landbún-
aðarins að aukast um 35—45% á sama tíma.
Er þetta framkvæmanlegt? Það skal strax tekið fram, að í auð-
valdslöndum er slíkt ókleift með öllu. En það er hægt að gera
þetta, og það verður framkvæmt — og af eftirfarandi ástæðum:
1) Iðnaðurinn stefnir nú að því að auka mjög framleiðslu á
framleiðslutækjum, sem ætluð eru landbúnaðinum. Næstu
6 árin mun landbúnaðurinn fá 50—60.000 dráttarvélar og