Réttur - 02.05.1950, Síða 46
126
RÉTTUR
lendra stórveldasinna. Við ráðum yfir slíku afli — það er ríkis-
vald okkar, vald alþýðuríkisins.
Nauðsynlegt er að eiga sér sterka' og tryggja bandamenn jafnt
í blíðu sem stríðu. Við eigum slíka bandamenn. Hin miklu Sovét-
ríki og alþýðulýðveldin.
Það er nauðsynlegt að eiga stuðning alls almennings. Hver get-
ur efazt um, að við njótum virkrar aðstoðar allrar alþýðu? Hún
hefur greitt okkur atkvæði með kjörseðlinum og með blóði sínu,
því er runnið hefur í baráttunni við afturhaldið. Og nú greiðir
hún atkvæði með tonnum kola og stáls, með hektörum ræktaðs
lands, með glæsilegri samkeppni fyrir flokksþingið. Við njótum
virks stuðnings allrar vinnandi alþýðu.
Nauðsynlegt er, að fyrir hendi sé flokkur, sem kann að skyggn-
ast inn í framtíðina, flokkur, sem á sér mikla og hetjulega for-
tíð, sem óttast ekki erfiðleikana, en er reiðubúinn til hvers kyns
fórna, flokkur, sem getur kannazt við mistök sín og bætt fyrir
þau. Við eigum slíkan flokk í smíðum — og því munum við sækja
fram og berjast fyrir framkvæmd 6 ára áætlunarinnar, undir-
stöðu sósíalismans í Póllandi. Við munum sækja fram undir
blaktandi fána marxismans — og lenínismans, undir merkjum
þeirra Marx og Engels, Lenins og Stalins, og við munum vinna
sigur í þessum miklu og sögulegu stéttaátökum.