Réttur - 01.10.1950, Síða 3
RÉTTUR
243
svo háttað, að annars vegar stendur mikill þorri þegnanna, en
hins vegar einstakir valdsmenn í þjóðfélaginu og málið snýst
um valdbeitingu valdsmanna gagnvart þegnunum. Vanræki dóm-
ari að rannsaka þannig báðar hliðar málsins gerist hann a priori
liðsmaður valdsmannanna gegn þegnunum og það sem átti að verða
óháð og hlutlaus rannsókn snýst þá upp í ofsókn. Dómstóllinn
er þá orðinn tæki í höndum hinna einstöku valdsmanna til að
framfylgja þeirra vilja, án tillits til þess, sem rétt er eða rangt.
Slík aðferð er þá vitanlega brot á stjórnarskránni og mannrétt-
indahugsjón hennar.
Þetta læt ég nægja um hina almennu skyldu dómarans í málum,
af því tagi, sem hér er til meðferðar.
Skal þá rætt um aðstöðu þegnanna og kröfu þeirra til dómarans
um, að hann varðveiti rétt þeirra í slíku máli, sem því, er reis
út af atburðunum 30. marz 1949.
Rétturinn til þess að safnast saman til mannfunda undir berum
himni er sérstaklega verndaður með 74. gr. stjórnarskrárinnar.
Mannsöfnuður við Alþingi íslendinga var fyrrum óaðskiljanlegur
þáttur í sjálfu Alþingi og á rót sína að rekja til gamalla erfða
hins germanska kynstofns frá elztu þingum, sem mannfjöldinn
sjálfur sat, og oft er í hinu forna Alþingi leitað til fjöldans sjálfs
til að heyra undirtektir hans undir málin.
Aðalkrafa þess mannfjölda, sem saman kom á Austurvelli 30..
marz, var að þjóðaratkvæði yrði látið fram fara um mál það, er
rætt var. Ákvæðið um þjóðaratkvæði, sem væri öllum lögum og
samþykktum Alþingis æðra, var þýðingarmesta ákvæði lýðveldis-
stjórnarskrárinnar frá 17. júní 1944, næst lýðveldisstofnuninni
sjálfri- Ákvæðið um þjóðaratkvæði átti að verða trygging fyrir
þjóðina gagnvart hugsanlegri spillingu, vanrækslu, yfirsjón eða
valdmisbeitingu af hálfu meirihluta alþingismanna og ríkisstjórn-
ar. Ekkert er því eðlilegra en slík krafa mikils mannsafnaðar, þeg-
ar um þýðingarmikið mál er að ræða.
Var um svo þýðingarmikið atriði að ræða.30. marz, að slík krafa
væri eðlileg?
Samþykkt inngöngu íslands í hernaðarbandalag þýddi að ger-