Réttur - 01.10.1950, Side 5
RÉTTUR
245
ráðast á mannfj ölda, nema hann hafi áður á löglegan hátt skipað
þeim mannfjölda að sundrast, af því upphlaup hafi orðið. Ef
lögreglustjóri lætur lögreglumenn ráðast á mannsöfnuð án þessa,
þá er þar um ofbeldisárás lögreglumanna að ræða á þegnana og
tröðkun á mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar af hálfu
yfirvaldsins.
Hvað upplýstist í þeirri réttarrannsókn, er fór fram út af at-
burðunum 30. marz, um framkomu lögreglustjóra í þessu atriði,
— og skal þess þó getið strax eins og ég mun síðar reyna að sanna,
að dómarinn virtist síður en svo vera að rannsaka, hvort um
nokkra sök sé að ræða hjá lögreglustjóra?
í fyrsta lagi upplýsist það svo óvéfengjanlega, að enginn, lög-
reglustjóri heldur ekki, reynir fyrir réttinum að halda því fram
að skorað hafi verið á mannfjöldann að sundrast áður en tvær
fyrstu atlögur lögreglunnar og hvítliðsins eru gerðar, en í þeim
er beitt kylfum. Það var hvorki löglega né ólöglega skorað á
mannfjöldann að sundrast, heldur alls ekki skorað á hann að
sundrast, bara ráðist á hann og er slíkt beint brot á refsilögunum
XIII. kafla. Virðist lögreglustjóri hafa álitið, að nóg væri að gera
tilraun til slíkra ráðstafana, ef táragasi skyldi beita, og er það
rangt álit. Aðvörun ber að gefa áður en nokkru ofbeldi er beitt
við mannsöfnuð. En dómarinn rannsakar aldrei, hvort lögreglu-
stjóri hafi gegnt þeirri skyldu sinni að aðvara löglega áður en
þessar árásir voru hafnar. Hann virðist hafa verið haldinn af sömu
röng'u hugmyndinni og lögreglustjórinn og taka jafn lítið tillit til
réttar fólksins, er safnast saman, og ákvæða refsilaganna.
í öðru lagi er svo gasárás lögreglumanna og hvítliðsins, sem
stofnaði heilsu og lífi friðsamra borgara í hættu og framkoma
lögreglustjóra gagnvart almenningi í sambandi við hana.
Gasárásin 30. marz er fyrsta dæmið á íslandi um notkun gas-
sprengna gegn mannsöfnuði, sem saman er kominn af stjórnmála-
legum orsökum. Það er því um að ræða beitingu táragass gagnvart
fólki, sem stendur á grundvelli fundafrelsisákvæða stjórnarskrár-
innar. Dómara bar því að vera sérstaklega á verði um að gæta
hér réttar almennings og rannsaka til hlítar, hvort um misbeitingu