Réttur - 01.10.1950, Qupperneq 11
RÉTTUR
251
anleg jafnrétti þegnanna fyrir dómaranum. Dómari, sem þannig
lýtur framkvæmdarvaldi valdsmannanna, brýtur þá grundvallar-
reglu stjórnarskrárinnar, að dómsvaldið skuli vera óháð fram-
kvæmdarvaldinu.
Ég læt nú útrætt um lögreglustjóra og afstöðu dómarans gagn-
vart lögbrotum hans. Ég hef rætt það svo ýtarlega, vegna þess
að í því máli lá nokkur rannsókn fyrir, þótt tilviljanakennd og lítt
ýtarleg væri.
En um þá valdsmenn aðra, sem ég óskaði eftir, að yfirheyrðir
yrðu, með yfirlýsingu minni fyrir réttinum 8. apríl: ráðherrana
og formenn stjórnarflokkanna, gildir öðru máli.
Krafa mín fyrir réttinum 8. apríl um að þessir nefndu menn
væru teknir til yfirheyrslu, var krafa um óháða og hlutlausa
rannsókn málsins. Sú staðreynd, að þessir nefndu menn höfðu ekki
verið teknir til yfirheyrslu, en hinsvegar margir menn, er til-
heyrðu verkalýðssamtökunum, lagðir í einelti, var ein höfuðrök-
semd mín fyrir því, að dómstóllinn væri ekki óháður og hlutlaus,
og fyrir slíkum rétti myndi ég ekki svara. Væru hinsvegar þessir
nefndu menn teknir til yfirheyrslu, kvaðst ég myndu svara spurn-
ingum réttarins.
Ég lagði áherzlu á það fyrir réttinum, að ég bæri þá kröfu fram,
sem í yfirlýsingu minni fólst, sem formaður þingflokks Sósíalista-
flokksins, m. ö. o. sem kjörinn fulltrúi þjóðarinnar á Alþingi, einn
af þeim, er samið hefur og sett þá stjórnarskrá lýðveldisins, sem
dómsvaldinu ber að starfa samkvæmt.
Það var hægur vandi fyrir dómarann að verða við þessari kröfu
» og tryggja álit réttarins sem óháðs og hlutlauss dómstóls, er leit-
aðist við að komast að réttri og sannri niðurstöðu án alls mann-
greinarálits. Það þurfti aðeins að kalla þessa sjö menn, er ég
nefndi, til yfirheyrslu og rannsaka þær sakargiftir, sem gegn þeim
voru bornar fram opinberlega m. a. á Alþingi í þingskjali.
En dómarinn kallar þessa menn aldrei fyrir sig. Hann hreyfir
ekki við að rannska framferði þessara valdsmanna, sem af fjöl-
mörgum borgurum landsins, innan Alþingis og utan, voru taldir
eiga sökina á atburðunum 30. marz.