Réttur - 01.10.1950, Side 16
V
256 RÉTTUR
tilgangur þeirra með því að bjóða fólkinu niður á Austurvöll
og hvers vegna þeir láta það undir höfuð leggjast að ávarpa þetta
fólk eða aðvara það áður en ráðizt er á það?
Hvers vegna kallar dómarinn þessa menn ekki til yfirheyrslu,
ekki sízt eftir að þess er krafizt af vitnum, sem yfirheyrð eru?
Svona rannsókn, eða réttara sagt það að sleppa slíkri rannsókn,
er ekki sæmandi fyrir dómstól, sem á að heita óháður og hlutlaus.
★
Þá er enn eitt, sem hlotið hefði að vekja eftirtekt hvers óhlut-
drægs dómara og gera það nauðsynlegt fyrir hann að yfirheyra
þessa menn:
Hinir nefndu valdsmenn og blöð þeirra gerðu um það hróp
mikið næstu daga, að mannsöfnuðurinn hefði ætlað að ráðast á
Alþingishúsið og taka það herskildi. Var reynt að láta líta svo út
af hálfu þessara manna, að raunverulega hefði verið um eins
konar byltingartilraun að ræða af hálfu Sósíalistaflokksins, sem
hefði bara misheppnast fyrir góðar „varnir“ „lýðræðissinna“. Að
vísu var þessum hlægilegu getsökum hætt skömmu síðar, er ljóst
var, hvílíkt fleypur þær voru.
JEn af hverju komu þær upp?
Hverjir voru það, sem útbreiddu þær?
Og að hverju stefndu þessir valdsmenn og æstustu fylgjendur
þeirra, sem vildu láta líta svo út?
Frá slíkra manna sjónarmiði áttu m. ö. o. atburðirnir 30. marz að
verða tilefni til ofsókna eða jafnvel banns á Sósíalistaflokknum.
Og er þá ekki eðlilegt, að þeirri spurningu skjóti upp hjá óhlut-
drægum rannsóknardómara ,hvort vissir valdsmenn hafi haft
áhuga fyrir að stofna til óeirða 30. marz, til þess að reyna að fá
tilefni til slíkra aðgerða sem nefndra ofsókna, — og að vítavert
framferði lögreglustjóra gagnvart mannsöfnuði, sem er í sínum
rétti, geti staðið í sambandi við ósk um að skapa slíkt tilefni?
Fordæmin eru þekkt. Dómsmálaráðherra Prússlands, Her-
mann Göring, lét 1933 kveikja í ríkisþinghúsinu þýzka og kenndi
kommúnistum og notaði það sem tilefni til banns á flokknum og
ofsókna gegn verkalýðshreyfingunni. Morgunblaðið tók þá undir