Réttur - 01.10.1950, Síða 18
258 RÉTTUR
r~
Með framferðinu í rannsókn og dómum út af 30. marz er dóm-
stóllinn gerður að tæki valdsmanna til ofsóknar gegn fólkinu, *
sem stendur á sínum rétti samkvæmt lögum og stjórnarskrá.
Samkvæmt anda stjórnarskrárinnar er dómstóllinn vörður um
réttindi einstaklingsins og fjöldans gagnvart valdsmönnunum
sem öðrum.
Með framferðinu í rannsókn og dómum út af atburðunum 30.
marz er dómstóllinn gerður að skálkaskjóli fámennrar, en auðugr-
ar og spilltrar höfðingjastéttar, sem bruggar sjálfstæði þjóðarinnar
fjörráð, en er samkvæmt rannsóknaraðferðunum 1 þessu máli upp
yfir það hafin að vera yfirheyrð fyrir gerðir sínar.
Ég álít, að slík misnotkun rannsóknar- og dómsvaldsins sé
vanvirða við dómsvaldið, brot á mannréttindum, lögum og stjórn-
arskrá.
Alvarleg ásökun mín til réttarins 8. apríl, — sem í fólst viðvörun
og vantraustsyfirlýsing, sem ég þó var reiðubúin til að endur-
skoða, ef dómarinn bætti ráð sitt og rannsakaði málið sem
óháður og hlutlaus dómari, — hefur því haft við fyllstu rök að
styðjast.
Með tilvísun til framanritaðra röksemda, geri ég þær réttar-
kröfur, að ég verði sýknaður af öllum kröfum réttvísinnar í máli
þessu og dæmd hæfileg málsvarnarlaun að mati réttarins.
Reykjavík, 12. desember 1950.
Einar Olgeirsson.