Réttur - 01.10.1950, Blaðsíða 31
RÉTTUR
271
„Upphaf jákvæðra aðgerða"
Og nú líður að úrslitum. Um miðjan júní 1950 kom sérfræðingur
Bandaríkjaforseta í utanríkismálum, John Foster Dulles, til Japan
ásamt Johnson hermálaráðherra og Bradley formanni herráðsins.
Eftir ýtarlegar viðræður þessara æðstu manna bandaríska hersins
við MacArthur hélt John Foster Dulles áfram til Kóreu.
19. júní hélt hann ræðu á þingi Suðurkóreu og sagði m. a.:
„Rauðliðar munu missa völdin í Norðurkóreu .... Þeim
verður ekki hlíft né við þá samið .... Bandaríkin eru
reiðubúin til að láta Suðurkóreu í té allan nauðsynlegan
stuðning, efnislegan og siðferðilegan, í baráttunni gegn
kommúnismanum .... “
Um sömu mundir sendi bandarísk fréttastofa frá sér mynd sem
birt hefur verið um allan heim, þar sem Dulles sést í könnunarferð
í skotgröfum við 38. breiddarbaug, ásamt sendiherra Bandaríkj-
anna í Suðurkóreu, Muccio, og herráði Suðurkóreu. „Það er varla
nokkur af meðlimum öryggisráðsins sem ímyndar sér að Dulles
og Muccio hafi eingöngu verið að tína fjólur í skotgröfunum,“
sagði Malik, fulltrúi Sovétríkjanna, í Öryggisráðinu. 3. ágúst.
21. júlí fór Dulles aftur frá Kóreu. í kveðjuræðu sinni komst
hann þannig að orði:
„Kórea stendur ekki ein .... viðtöl mín við MacArthur
hershöfðingja eru upphaf jákvæðra aðgerða."
25. júní hófst Kóreustyrjöldin.
Tveir æðsfu embæffismenn Suðurkóreu bera vifni
Enn skulu leiddir sem vitni tveir æðstu embættismenn Suður-
kóreu. Kim I Sek, fyrrverandi innanríkisráðherra, sem áður hefur
verið vitnað til, hefur skýrt þannig frá síðasta aðdraga styrjald-
arinnar:
„Eins og kunnugt er fór Syngman Rhee til Japan s.l. vor
í boði MacArthurs. Þar var honum skipað að fela Mac-