Réttur - 01.10.1950, Side 32
272
RÉTTUR
Arthur æðstu ráð yfir kóreska hernum meðan átökin við
Norðurkóreu stæðu. Syngman Rhee féllst á þessi fyrirmæli,
þar sem hann var sannfærður um að hann myndi fá stuðn-
ing frá bandaríska lofthernum, bandaríska flotanum og her
japanskra sjálfboðaliða, þegar sóknin til norðurs hæfist.
Hann var öruggur um að vinna sigur í slíkum átökum.
Þess vegna fyrirskipaði Syngman Rhee hershöfðingi Sek
Wong og Tsai Ben Dek að hefja árásina á Norðurkóreu í
dagrenningu 25. júní. Samkvæmt frásögn Kim Sek Wongs
var áætlunin sú að sækja fram frá Ongjin og taka Kaisu
og síðan Pyongyang, og styðja þessa sókn almennri árás yfir
allan 38. bauginn .... “
Hitt vitnið er Mun Hak Wong, nánasti stjórnmálaráðgjafi Syng-
man Rhee. Hann sagði m. a. í skýrslu sem birt var 30. júlí í ár:
„Á ráðstefnu æðstu hernaðarsérfræðinganna í Tókíó var
fyrst og fremst rætt um á hvaða tíma skyldi hefja Kóreu-
stríðið, hvernig því skyldi hagað og hvernig hægt væri að
koma á „löglegu" hernámi Formósu. Samkvæmt skoðun
MacArthurs urðu bandarískar hersveitir að hernema For-
mósu fyrir júlílok, en til þess væri nauðsynlegt að hefja
borgarastyrjöld í Kóreu, þannig að hægt væri að nota hana
sem átyllu til hernámsins. Því skyldi Kóreustríðið hefjast
í júlí. Ráðstefnan féllst á áætlun MacArthurs.
Um miðjan júní var ástandið í Suðurkóreu mjög alvar-
legt, og því taldi Syngman Rhee nauðsynlegt að koma í veg
fyrir algert stjórnmálalegt gjaldþrot með tafarlausri borg-
arastyrjöld .... í júní sendi Syngman Rhee MacArthur
daglegar skýrslur um aðstæðurnar við 38. breiddarbaug.
MacArthur sendi skýrslurnar áfram til Trumans. Af þess-
um sökum var það sem Truman ákvað að senda Dulles til
Suðurkóreu, þar sem hann átti að ýta undir ákvörðun
Syngman Rhee um að hefja borgarastyrjöld.
Þegar Dulles kom til Seoul kynnti hann sér fyrst og
fremst matvælæaástandið. Það voru engin hrísgrjón á mark-
aðnum og mikil ólga meðal almennings. Dulles komst
að þeirri niðurstöðu að engin hrísgrjón væru í Suðurkóreu
og að án þeirra væri ekki hægt að stjórna landinu. Banda-
ríkin báru sjálf lokaábyrgð á þessu ástandi, og Dulles til-
kynnti Syngman Rhee að Bandaríkin féllust á að borgara-
styrjöld væri óumflýjanleg.
Dulles för um svæðið við 38. breiddarbaug og sendi sím-
leiðis skýrslur til Tokíó og Washington um athuganir sínar
og niðurstöður. Undirbúið var að Bandaríkin væru til taks.
Þegar Dulles kom til Tokíó lagði hann áherzlu á hversu