Réttur - 01.10.1950, Blaðsíða 33
RETTUR
273
ótryggt ástandið í Suðurkóreu væri og því væri óumflýjan-
legt að borgarastyrjöld yrði hafin án tafar. MacArthur
sendi Syngman Rhee hvatningarskeyti.
Daginn eftir að Dulles kom til Tokíó kom til Suðurkóreu
hópur herforingja úr herráði MacArthurs og könnuðu þeir
ýtarlega ástandið við 38. breiddarbaug .... Frá 20. júní var
stöðugt símasamband milli Seoul, Tokíó og Washington ....“
Norðurkórea var að sjálísögðu yiðbúin
Hér hafa verið raktir í stórum dráttum nokkrir meginþættir úr
undirbúningi leppstjórnarinnar í Seoul og Bandaríkjastjórnar
undir Kóreustyrjöldina. Þessi sönnunargögn hafa ekki verið vé-
fengd og verða ekki véfengd. Hins vegar hefur sú röksemd vaðið
uppi í afturhaldsblöðunum að hinir glæsilegu sigrar alþýðuhersins
í upphafi styrjaldarinnar sýni að það hafi verið Norðurkóreumenn
sem voru búnir undir styrjöldina. Suðurkórea og Bandaríkin hafi
hins vegar verið vanbúin.
Að sjálfsögðu var Norðurkórea viðbúin. Sífelldar hótanir og
stríðsundirbúningur Syngman Rhee og félaga hans hafa að sjálf-
sögðu ekki farið fram hjá ráðamönnum Norðurkóreu, og þeir
áttu þann einn kost að snúast til varnar og stefna að algerum
sigri. Eins og áður hefur verið rakið átti árásin upphaflega að
hefjast um mitt sumar 1949, en sú áætlun fór út um þúfur, þótt
til nokkurra vopnaviðskipta kæmi. Við það tækifæri flýði veru-
legur hluti Suðurkóreuhers norður á bóginn, og valdamenn Norð-
urkóreu hefðu mátt vera algerlega blindir og sinnulauir, hefðu
þeir ekki gert sér grein fyrir að hverju stefndi.
Þeir töldu sér sigur vísan
Syngman Ree og félagar hans töldu sig hins vegar hafa alla
yfirburði, og ráðamenn Bandaríkjanna voru orðnir sömu skoðun-
ar. Þegar hernámslið Bandaríkjanna fór frá Suðurkóreu í júní
1949, voru skildir eftir 500 liðsforingjar og aðrar þjálfunarsveitir.
Hlutverk þeirra var að byggja upp það sem bandarísk blöð kölluðu
„bandarískasta herinn utan Bandaríkjanna".
18