Réttur - 01.10.1950, Page 34
274
RETTUR
New York Herald Tribune skýrði frá því 5. júní í ár, þrem vik-
um áður en styrjöldin hófst, að:
„það eru 13—14 Bandaríkjamenn í hverri kóreskri her-
deild. Þeir lifa saman á herstöðvunum — við 38. breiddar-
baug .... þeir eru saman bæði við æfingar og í frítímum.“
Þessi ummæli voru höfð eftir Roberts hershöfðingja, sem áður
var vitnað til, og hann hélt áfram af óvenjulegri hreinskilni og
kvað þetta sanna
„hvernig hægt væri að nota 500 stríðsvana bandaríska liðs-
foringja á skynsamlegan og hagkvæman hátt til að þjálfa
100.000 manns, sem vilja berjast fyrir okkur.“
Og Roberts hershöfðingi lauk máli sínu með þessum orðum:
' „Suðurkóreski herinn er góður varðhundur þess fjár-
magns, sem við höfum komið fyrir í þessu landi.“
Athyglisvert er einnig það sem fréttaritari svissneska borgara-
blaðsins Neue Ziiricher Zeitung í Seoul sendi blaði sínu 20. júní
1950, rétt áður en styrjöldin hófst:
„í Suðurkóreu er enginn hörgull á fólki sem vill leysa
hin þungbæru vandamál landsins með hernaðarárás á
Norðurkóreu. Suðurkóreuheriim, sem Bandaríkjamenn hafa
búið vopnum og þjálfað afbragðsvel, telur 100.000 manns
auk 50.000 manna lögreglusveita, og er eflaust miklu öflugri
en norðurkóreski herinn.“
Danska blaðið Politiken skrifaði 7. júlí 1950:
„í yfirlitsgrein í New York Times er sagt að í upphafi
styrjaldarinnar hafi norðurkóreski herinn verið talinn 6—9
herdeildir, sem í væru um 95.000 manns, vantrúaðir og von-
daufir, og réði herinn yfir 70—100 skriðdrekum. Talið var
að Bandaríkin þyrftu aðeins að styðja Suðurkóreu með flug-
her og flota. Á sama hátt og styrkur Norðurkóreumanna var
vanmetinn, voru hinar 8 herdeildir Suðurkóreumanna of-
metnar .... Sagt er að yfirmaður bandarísku hernaðarsendi-
nefndarinnar í Kóreu hafi lýst suðurkóreska hernum sem
bezta hernum á meginlandi Asíu.“
Slíkar voru þær vonir sem Bandaríkjamenn og leppar þeirra
höfðu gert sér og í samræmi við þetta var yfirlýsing Trumans frá