Réttur - 01.10.1950, Síða 38
278
RÉTTUR
Þróunin í Norðurkóreu
Hér er ekki rúm til að rekja svo nokkru nemi hin stórbrotnu
afrek íbúa Norðurkóreu meðan þeir fengu að vinna í friði, enda
hafa afturhaldsblöðin ekki reynt að bera brigður á hinar stórstígu
framfarir. Jörðinni sem áður var í höndum gósseigenda var skipt
á milli fátækra bænda og vinnumanna. Verksmiðjur, samgöngu-
tæki, bankar og auðlindir var tekið úr höndum fárra gróða-
brallsmanna og þjóðnýtt. Framleiðsluaukningin varð mjög stór-
felld, allir höfðu atvinnu, og tveim milljónum Kórverja sem flýðu
að sunnan síðan 1945 var tekið opnum örmum. Meðan Japanir
drottnuðu yfir landinu var kórverska bönnuð, en nú* voru í flýti
stofnaðir 16 æðri skólar og 12.000 alþýðuskólar með yfir milljón
nemenda. Allir vildu læra að lesa og skrifa móðurmálið. Kórverska
varð þegar opinbert mál í Norðurkóreu, þótt MacArthur þyldi
aðeins ensku á sínu hernámssvæði.
Kjör almennings bötnuðu fljótt og jafnframt voru gerðar víð-
tækar áætlanir um endurreisn landsins. Grundvöllurinn undir
stjórn landsins voru athafnanefndir alþýðunnar, kosnar í almenn-
\un, leynilegum kosningum. Fersk, þjóðleg öfl voru kvödd til
starfa í Norðurkóreu á sama tíma og MacArthur og Syngman
Rhee studdust fyrst og fremst við þá embættismenn sem verið
höfðu kvislingar Japana.
Frá verkamönnum og bændum Norðurkóreu hefur komið frum-
kvæðið að hinni þjóðlegu baráttu fyrir sameiningu landsins. Aftur
og aftur hafa flokkar og alþýðusamtök Norðurkóreu snúið sér til
valdamanna Suðurkóreu með tillögur um sameiningu alls landsins.
Svörin hafa ævinlega verið þverleg neitum. Síðasta tilraunin
var gerð í júní í ár, rétt áður en styrjöldin hófst, og voru sendi-
menn Norðurkóreu þá teknir höndum og fangelsaðir.
En fólk Suðurkóreu fylgdist með framförunum og aðstæðunum
í Norðurkóreu. Árið 1948 ákváðu fulltrúar alþýðusamtaka um
allt landið að efna til allsherjarkosninga í ágúst sama ár. Var
kosið um einingu þjóðarinnar og lýðræðislega endurreisn hennar.
Syngman Rhee bannaði Suðurkóreumönnum að taka þátt í kosn-