Réttur - 01.10.1950, Page 45
RÉTTUR
285
Kaisék, hann var nauðsynlegur liður í áætlunum þeirra í Asíu.
Hins vegar höfðu Indland, England, skandinavísku löndin og
fleiri viðurkennt alþýðustjórnina opinberlega, og þar með raun-
verulega lýst yfir því að Öryggisráðið væri ranglega skipað og
óstarfhæft.
Nehru beifir sér fyrir friði
Þannig stóðu sakir þegar Kóreustyrjöldin hófst. Öryggisráðið
var ekki ályktunarfært og samþykktir þess ólöglegar. Úr þessari
sjálfheldu reýndi Nehru, forsætisráðherra Indlands, að bæta með
persónulegu frumkvæði sínu. 13. júlí sendi hann Stalín, forsætis-
ráðherra Sovétríkjanna, svohljóðandi bréf:
„Sendiherra vor hefur í viðtölum við utanríkisráðuneytið
í Moskvu skýrt frá skoðunum Indlandsstjórnar um Kóreu-
deiluna. Markmið Indlands er að staðbinda deiluna og stuðla
að skjótri, friðsamlegri lausn með því að fjarlægja sjálf-
helduna í Öryggisráðinu, þannig að fulltrúi alþýðustjórnar-
innar í Kína taki þar sæti sitt, Sovétríkin hefji þar störf að
nýju, og Sovétríkin, Bandaríkin og Kína geti — innan vé-
banda ráðsins eða utan þess — fundið forsendu þess að
stöðva átökin og að endanleg lausn fáist á Kóreuvandamál-
inu með aðstoð annarra friðsamra þjóða og í samvinnu við
þær. Ég er þess fullviss að þér séuð staðráðinn í því að efla
friðinn og halda þannig einingu sameinuðu þjóðanna og
leyfi mér því að skírskota til yðar persónulega um að beita
valdi yðar og áhrifum til að unnt verði að ná þessu mark-
miði sem velferð mannkynsins er háð í ríkasta mæli.“
Svar Stalíns
Stalín svaraði um hæl 15. júlí, og var bréf hans á þessa leið:
„Ég fagna friðarfrumkvæði yðar. Ég er algerlega sammála
yður um nauðsyn þess að leysa Kóreudeiluna á friðsamlegan
hátt fyrir atbeina Öryggisráðsins og með skilyrðislausri
þátttöku fulltrúa stórveldanna fimm, meðal þeirra kín-
versku alþýðustjórnarinnar. Ég er þeirrar skoðunar að til
þess að fljótlega sé hægt að leysa Kóreudeiluna sé heppi-
legt að fulltrúar Kóreuþjóðarinnar mæti fyrir Öryggisráð-
inu.“