Réttur - 01.10.1950, Page 50
PALMIRQ TOGLIATTI:
Lgósmynd af liðhlaupa
(Eftirfarandi bréf P. T. um brottrekstur Ignazio Silones
úr Kommúnistaflokknum birtist í „L’Unita," málgagni
Kommúnistaflokks Ítalíu, 6. 1. 50 og er íslenzkað eftir
þýðingu í „Labour Monthly".
Kæri herra!
í september-októberhefti tímaritsins Communita árið
1949 birtuð þér grein eftir Ignazio Silone undir nafninu
„Undankoma í neyð“.
Ef ég skil rétt, þá er hún tekin úr fyrirhugaðri syrpu*
nokkurra kommúnistiskra liðhlaupa, þ. e. a. s. höfunda
eins og Gides, Koestlers og Silones sjálfs, sem eitt sinn
voru kommúnistar eða áhangendur þeirrar stefnu, en hafa
nú gerzt andkommúnistar. Eftir því að dæma sem ég hef
lesið, þá er megintilgangur þessarar syrpu sá, hvað suma
höfundana snertir, að sýna fram á, að þeir sem falli frá
kommúnisma öðlist alveg sérstakt ásigkomulag hugarins,
sem ekki breytist þaðan í frá, en fyrir öðrum vakir að
sanna, að einhverjar sérstakar eðliseigindir hafi skapað
þeim þessi forlög. Þetta eru athyglisverðar staðhæfingar,
og ég neita því ekki, að nokkurt skjall kunni að felast í þeim
um okkur kommúnista. Ef kommúnisminn væri ekki alvar-
leg stjórnmálahreyfing og orkaði ekki djúpt á hugsana-
og viljalíf okkar, þá mundum við hvorki — eins og raun er
á — vera vissir um sigur hennar, né heldur hafa getað gefið
* Guðinn sem brást.