Réttur - 01.10.1950, Side 63
RETTUR
303
smiðjur o. s. frv.) og koma á hagnýtari vinnubrögðum og aukinni
fjölbreyttni útflutningsvara.
3. Að ráðstafa þannig nýju togurunum, að sem mest atvinnuör-
yggi skapist við rekstur þeirra, með því að gefa bæjar- og sveita-
fél. kost á að eignast skipin og gera þeim það fjárhagslega kleyft.
Landbúnaðarmál: Að auka fjármagn til landbúnaðarfram-
kvæmda. Áherzla verði lögð á vélakaup til félagslegra nota og að
auka framkvæmdir samkvæmt nýbyggðalögunum.
Iðnaður: Að efla iðnaðinn með því að tryggja honum ávallt
nægileg hráefni. Iðnaðarframleiðslu til útflutnings sé veitt frelsi
til hráefnakaupa án allra takmarkana frá gjaldeyrisyfirvöldum.
Ráðizt verði í byggingu áburðarverksmiðju, sementsverksmiðju
og lýsisherzluverksmiðju jafnhliða stórframkvæmdum í raforku-
framleiðslu.
Þá bendir flokkurinn á, að unnið verði að eftirtöldum atvinnu-
framkvæmdum:
1. íbúðarhúsabyggingar í kaupstöðum, kauptúnum og sveitum
verði auknar með hagkvæmum lánskjörum. Ríkið aðstoði bæjar-
félögin við útrýmningu heilsuspillandi íbúða. Afnumin séu þau
höft, sem torvelda byggingu eðlilegra íbúðarhúsa.
2. Unnið verði af fullum krafti að hinum nýju stórvirkjunum
við Sogið og Laxá og undirbúningi nýrra stórvirkjana hraðað.
3. Auknar verði framkvæmdir ríkisins um land allt. Hafnar verði
framkvæmdir við aukningu hitaveitu Reykjavíkur og lagningu
Austurvegar.
Sósíalistaflokkurinn leggur áherzlu á, að aukning atvinnu verði
sem almennust og nái jafnt til allra landshluta.
Þannig verði, jafnhliða stórframkvæmdum á Suðvesturlandi,
kappkostað að koma upp afkastamiklum fiskiðnaði á Vestfjörðum
með hliðsjón af legu við aðal veiðisvæði togaraflotans. Ennfremur
nýjar raforkuframkvæmdir.
Á Norðurlandi verði aukinn togararekstur og unnið að meiri
fjölbreytni í hagnýtingu síldar.
Á Austur- og Suðausturlandi verði aukin fiskvinnsla, byggðar
fiskimjöls- og lýsisverksmiðj ur og efnt til raforkuframkvæmda.