Réttur - 01.10.1950, Side 66
306
RETTUR
Með einokun sinni hefur þessari nýríku auðmannaklíku tekizt
að binda ísland á klafa ensk-amerískra auðhringa. Efnahagslegu
sjálfstæði landsins er fórnað á altari þessarar auðdrottnunar, at-
vinnulegar framfarir landsins eru hindraðar, þjóðin er aftur sem
á dönsku yfirdrottnunartímunum látin þurfa að biðja erlenda
embættismenn um leyfi til þess að hagnýta sínar eigin auðlindir,
— landsfólkið er á ný ofurselt arðráni erlendra einokunarhringa,
sem nú hafa ýmsa voldugustu menn landsins að faktorum í útibú-
um sínum á íslandi, — atvinnuleysi og afturför er nú leitt yfir
þjóðina í kjölfar þessarar einokunar í stað þeirra stórstígu fram-
fara og atvinnu fyrir alla, sem þjóðin bjó við, meðan áhrifa
Sósíalistaflokksins naut við á ríkisstjórn.
Sósíalistaflokkurinn álítur nauðsynlegt að gera nú þegar eftir-
farandi ráðstafanir til þess að firra þjóðina þeim voða, sem af
áframhaldandi einokun þessara auðherra stafar:
1. Afnema það einokunarvald, sem nú er á viðskiptum lands-
manna og veita íslendingum frelsi til viðskipta, innan þeirra tak-
marka, sem lágmarksverð á útflutningi, hámarksverð á innflutt-
um vörum og bann á óþarfa innflutningi setur.
2. Afnumið sé það fyrirkomulag, að ríkið afhendi gjaldeyr; þjóð-
arinnar þeim gróðafélögum og einstaklingum, sem enga áhættu
hafa á sig tekið við framleiðslu hans.
3. Strangt gjaldeyris- og verðlagseftirlit.
4. Bankarnir styðji samtök framleiðenda og neytenda með hag-
kvæmum lánum.
5. Efling heilbrigðra, lýðræðislegra samtaka meðal framleiðenda
og neytenda, bæði á samvixmu- og samlagagrundvelli, um aukna
framleiðslu og aukinn útflutning og innflutning á nauðsynjum
landsmanna.
6. Löggjöf sé sett um lengri lán og lægri vexti á íbúðarhúsum en
nú eru, sbr. frumvarp á síðasta þingi.