Réttur - 01.10.1950, Page 68
308
RETTUR
og auðstétt landsins: að lama verkalýðssamtökin, eyðileggja þau
sem hagsmunatæki alþýðunnar og ryðja fasismanum braut.
Sjálfstæðisflokkurinn skipuleggur í þessu skyni opinberlega sér-
réttindafélög (sbr. ,,Óðinn“) innan verkalýðsfélaganna, með það
að markmiði að hrekja stéttvísa og félagsholla verkamenn úr
störfum og ofurselja þá atvinnuleysinu, einoka atvinnuna fyrir
meðlimi klíkufélaga sinna og leitast þannig við að gera að mark-
lausu pappírsgagni hinn almenna samningsbundna forgangsrétt
meðlima verkalýðsfélaganna.
Til þess að gera þetta framkvæmanlegt þurfti afturhaldinu að
takast að skapa atvinnuleysið að nýju.
Jafnframt er hafin herferð á hendur almennum og viðurkennd-
um lýðræðisreglum í stéttarfélögunum með því að svifta með-
limina málfrelsi og neita að bera undir atkvæði framkomnar
tillögur og ályktanir um brýnustu hagsmunamál félagsmeðlima.
Forysta Sjálfstæðisflokksins stefnir markvisst að því að leggja
undir sig verkalýðshreyfinguna stig af stigi og nýtur til þess fullr-
ar þjónustusemi foringja Alþýðuflokksins. Þennan háska þarf
alþýðan að fyrirbyggja strax og hindra, að lífsbjargarsamtök henn-
ar verði gerð að hjálendu atvinnurekenda og lögð í fjötra.
Sósíalistaflokkurinn telur brýna nauðsyn á, að allir sannir
verkalýðssinnar og öll alþýða geri sér þessar háskalegu fyrirætl-
anir afturhaldsins nægilega ljósar í tíma.
Sósíalistaflokkurinn álítur brýnasta verkefni verkalýðsins nú
sem stendur að skapa órofa samfylkingu allra stéttvísra og heið-
arlegra meðlima verkalýðshreyfingarinnar til þess að hrinda sókn
afturhaldsins og bjarga verkalýðshreyfingunni frá eyðileggingu.
Þess vegna heitir flokksstjórnarfundur Sósíalistaflokksins á alla
heiðarlega verkamenn og verkalýðssinna, hvar í flokki sem þeir
standa, að taka höndum saman um það stærsta og brýnasta hags-
munamál verkalýðsstéttarinnar, aðjarinda sókn afturhalds og vax-
andi fasisma í verkalýðshreyfingunni og tryggja stéttarsamtökin
sem hagsmunavígi verkalýðsstéttarinnar.
Þrátt fyrir allt sem, á milli ber, telur flokksstjórnarfundurinn,
að meðlimir og fylgjendur Sósíalistaflokksins og Alþýðuflokksins