Réttur - 01.10.1950, Side 74
314
RÉTTUR
Þingmenn úr þremur flokkum, þeir Finnbogi Rútur
Valdimarsson, Hannibal Valdimarsson og Páll Zóphónías-
son hafa borið fram þingsályktunartillögu þess efnis að
Alþingi lýsi yfir því, að Keflavíkursamningnum verði sagt
upp, að íslendingar taki rekstur hans að öllu leyti í sínar
hendur og að engin hernaðarleg afnot af vellinum verði
leyfð. Tillagan hefur ekki fengizt rædd.
Þá hafa sósíalistar flutt tillögu til þingsályktunar þess
efnis, að fulltrúar Islands skuli jafnan taka þá afstöðu
til mála á alþjóðavettvangi er stuðli að friði, sáttum milh
stórveldanna, banni við notkun kjarnorkuvopna, sýkla og
annarra múgmorðstækja og almennri afvopnun. Ennfrem-
ur að Island viðurkenni stjórn kínverska alþýðulýðveldis-
ins. — Sú tillaga hefur heldur ekki fengizt rædd.
Eins og öllum er kunnugt, er Thor Thors, fulltrúi ís-
lands á þingi sameinuðu þjóðanna einhver dyggasta mál-
pípa bandarískra stríðsæsingamanna, svo að hann hefur
gert land sitt að viðundri. Hefur hann t. d. tekið eindregna
og fyrirvaralausa afstöðu með Bandaríkjamönnum gegn
öllum tilraunum til að binda enda á Kóreustyrjöldina á
friðsamlegan hátt.
2/2 1951.
Brynjólfur Bjarnason.