Réttur - 01.10.1950, Qupperneq 75
RÉT rUR
315
ERLENDAR BÆKUR
Kai Moltke: Krigens
Kræmmere. Forlaget
Tiden, Köbenhavn 1949.
Þessi bók, sem er 364 síður og
ber undirtitilinn „Monopolernes
5. Kolonne", fjallar um auðhring-
ana í síðasta stríði, þátt þeirra
beggja megin víglínanna í því að
undirbúa það og samstarf þeirra,
meðan stríðið stóð. Það þarf hver
einasti maður, sem vill skygnast
bak við það járntjald, sem áróður
auðvaldsblaðanna skýlir stríðs-
undirbúningnum með, að lesa
þessa bók. Það skortir ekki heim-
ildir fyrir þeim afhjúpunum á
framferði vopnahringanna, sem
þarna eru birtar. Samstarf Stand-
ard Oil hringsins ameríska og
I.G.F.-hringsins þýzka er t. d.
sannað með rannsóknum rann-
sóknarnefnda ameríska þingsins
og staðfest fyrir amerískum dóm-
stólum. Yfirheyrslurnar yfir
stríðsglæpamönnum þýzku auð-
hringanna í Niirnberg eru líka
hagnýttar þarna mjög vel. Þess-
vegna verður þessi bók eins-
konar saga af svikastarfsemi auð-
hringanna við þjóðirnar, sem
þeir „tilheyra", ein sagan til, sem
sannar að auðhringirnir eiga sér
ekkert föðurland, — að auðhring-
irnir, sem læsa sig eins og kol-
krabbar um líkami þjóðanna, eru
sjálfir einskonar alþjóðlegt „föð-
urland“ peningafurstanna, fjand-
samlegt föðurlandi hverrar ein-
ustu þjóðar heims. Það er óhugn-
anleg saga, þessi saga af „kaup-
mönnum dauðans", sem gera
múgmorðin að stórfenglegasta
gróðabralli veraldarinnar, — en
það er saga, sem hver einasti
maður þarf að þekkja, sem lætur
sér annt um líf og velferð sína og
sinna, þjóðar sinnar og mann-
kynsins alls.
Höfundur bókarinnar, Kai
Moltke, er dugandi rithöfundur
um stjórnmál, einn af þeim frels-
ishetjum dönsku þjóðarinnar,
sem barðist gegn nazistum og
dvaldi því tæp fjögur ár í fanga-
búðum Hitlers-Þýzkalands.
Anna Seghers:
Die Gefáhrten. Aufbau-
Verlag. Berlin. 1950.
Þessi skáldsaga hinnar frægu
þýzku skáldkonu var gefin út
1932 í Berlín, en skömmu síðar
gerð upptæk af nazistastjórninni,
svo hún náði þá lítt út til al-
mennings. Nú er hún komin út að
nýju, 240 síður, og það er næsta
einkennilegt að lesa hana nú.
Andstæðurnar eru orðnar svo
miklar. Hún segir frá baráttu
verkalýðsins á árunum 1921 til
1930 í Ungverjalandi, Póllandi,
Ítalíu, Búlgaríu og Kína, — en í
öllum þessum löndum átti verka-
lýðurinn þá við fasisma að búa,
verkalýðssamtök öll kúguð og of-
sótt og allir, sem störfuðu að því
að hin mikla hugsjón sósíalismans
um frelsun verkalýðsins mætti
rætast, urðu að fara huldu höfði
eða dvelja í dyflisum auðvalds-
ins. Það eru verkamenn, bændur
og menntamenn, sem eru hetj-
urnar í þessari skáldsögu, sem
er þrungin því lífi og eldmóði,
sem Anna Seghers ætíð veitir sín-
um snjöllu sögum.