Réttur - 01.10.1950, Page 76
316
RETTUR
Heinrich Eildermann:
Die Urgesellschaft.
Dietz Verlag. Berlin 1950.
Merkilegt vísindarit um frum-
þjóðfélagið, mannfélagsskipun
„villimennskunnar“, einkum
framleiðsluskipun, sambúð kynj-
anna, trúarbrögð og siði.: 431 síða
að stærð. Hefur mikinn fróðleik
að bjóða öllum þeim, sem áhuga
hafa fyrir að kynnast því þjóð-
félagsástandi, sem mannkynið
lengst af hefur búið við, og for-
feður vorir lifðu við fyrir nokkr-
um þúsundum ára.
Walther Vontin: Heinrich
Heine. Aufbau-Verlag.
Berlin. 1949.
Ný ævisaga þess ljóðskálds
þýzks, sem vinsælastur er allra
þýzkra skálda á íslandi. Um ekk-
ert þýzkt skáld hefur eins verið
barizt eftir dauða hans og um
Heirich Heine og fáir menn hafa
eins verið ofsóttir eftir dauðann
sem hann, þótt hann færi vissu-
lega ekki varhluta af ofsóknum
og hatri afturhaldsins í lifanda
lífi. Þýzka afturhaldið ætlaði með
nazisma sínum að þurrka nafn
Heine burt úr sögunni, m. a. s.
„Lorelei" var talið eftir óþekkt-
an höfund. En hið nýja Þýzkaland
alþýðunnar metur og elskar
Heine, skáldið og bardagamann-
inn. Þessi ævisaga er einn vottur-
inn um það.
Friedrich Wolf: Dramen.
Band I. Aufbruch. —
Aufbau-Verlag Berlin 1950.
Aufbau-Verlag hefur með
þessu fyrsta bindi hafið útgáfu
á leikritum Friedrich Wolfs, hins
ágæta og mikilvirka þýzka rit-
höfundar. Verða bindin alls fjög-
ur og í þeim þessi leikrit. (Hvert
bindi ber táknrænt heildarnafn):
I. Aufbruch. Leikritin: Das bist
du. Mohamed. Tamar. Die
schwarze Sonne.
II. Frauen. Leikritin: Cyankali.
Tai Yang erwacht. Die leste
Probe. Laurencia.
III. Empörung. Leikritin: Der
Arme Konrad. Beaumarchais. Die
Matrosen von Cattaro. Kolonne
Hund.
IV. Besinnung. Leikritin: Prof-
essor Mamlock. Patrioten. Doktor
Wanner. Was der Mensch saet.
Ernst Sommer:
Die Sendung Thomas
Miinzers. Aufbau-Verlag
Berlín. 1948.
Þetta er mikil og söguleg rann-
sókn (318 síður) á lífi og kenn-
ingum þessa fræga alþýðuleið-
toga Þýzkalands og um leið á
bændastríðinu þýzka 1525 og
þeim róttæku kristnu kenningum,
er bændur bygðu mannréttinda-
kröfur sínar á. Bændastríðið
þýzka hefur allt frá því Friedrich
Éngels, 1850, reit „Der deutsche
Bauernkrig“, (sem 1946 kom út
í nýrri ágætri útgáfu hjá Dietz
Verlag, Berlin) verið eitt af þeim
viðfangsefnum, sem marxistar
með miklum árangri, hafa brotið
til mergjar. Ósigur bændastétt-
arinnar og allra hinna fram-
sæknu afla í Þýzkalandi á fyrri
hluta 16. aldar fyrir afturhalds-
herjum furstanna er einhver allra
örlagaríkasti viðburður þýzkrar
sögu. Sú ógæfa veldur þriggja
alda hrörnun og niðurlægingu
þýzku þjóðarinnar, bakar henni
að sínu leyti svipað tjón og ósig-
ur Jóns Arasonar og sona hans
í baráttunni við danska nýlendu-