Réttur - 01.10.1950, Page 79
RETTUR
319
nú í smíðum mikið verk um
fræðikenningu marxismans. Heit-
ir það á frönsku A la lumiere du
materialisme dialectique og á að
verða átta bindi. Fyrsta bindið,
Logique formelle — logique dial-
ectique er þegar komið út, og
það næsta, Methodologie des
sciences, mun vera í prentun.
Hin bindin eiga að fjalla um sögu
dialektikur og efnishyggju, fé-
lagsfræði, humanisma, siðgæði,
einstaklingsþroska og fagurfræði
o. fl.
Alick West: A good Man
fallen among the Fabians.
Lawrence & Wishart Ltd.,
London 1950.
Höfundur þessa rits hefur skrif-
að allmikið um bókmenntir, og
má nefna þar t. d. Crisis and
Criticism, sem kom út 1935 og
fjallaði um bókmenntagagnrýni
sem og einstaka höfunda.
í þessu riti sínu fjallar hann
um George Bernard Shaw, höf-
undarþróun hans og bókmennta-
afrek. En svo sem titillinn ber
með sér, er aðalviðfangsefnið á-
hrif „fabianfsmans“ á listsköpun
Shaws. Bóliin er hin skemmtileg-
asta aflestrar og skrifuð af mik-
illi skarpskyggni.
Maurice Cornforth:
In Defence of Philosophy
— against Positivism and
Pragmatism, Lawrence &
Wishart Ltd., London 1950.
Bók þessi er einskonar fram-
hald á fyrra riti höfundar Science
versus Idealism, þar sem fjallað
er um svipað efni. Gagnrýninni
á hinn svokallaða „rökfræðipós-
itivisma" er haldið áfram. Þá eru
og aðalforsvarsmenn „pragmat-
ismans“ ameríska, þeir William
James og John Dewey, teknir all-
rækilega til bæna. Loks gerir höf-
undur hinum svonefndu orð-
merkingarkenningum (sematics)
veruleg skil, kenningar þessar
hafa vaðið mjög uppi í Banda-
ríkjunum — og er aðaleintak
þeirra, að vandamál heimsins
stafi mest af rangri notkun orða,
og sé því atriði kippt í lag, sé
öllu borgið. Úrlausnarefni í þjóð-
félags- og stjórnmálum séu að-
eins sýndarverkefni, sem stafi af
því, að menn hafi ekki tekið upp
hið rétta orðfæri.
Höfundur sýnir fram á, hvernig
borgaraleg heimspeki nútímans
leiðist æ meira út í ófrjóa hug-
hyggju og skólaspeki. Hins vegar
gerir hann svo allskýra grein fyr-
ir heimspeki marxismans og þeim
leiðum, sem hún markar til úr-
lausnar.
Á. B. M.
T. A. Jackson: Ireland her
own. — Cobbett Press.
London 1947.
Undirtitill þessa rit er: An out-
line history of the Irish struggle
for national freedom and inde-
pendence. Þetta er mikið rit, 443
síður í stóru broti, og í hvívetna
hið merkilegasta, bæði vegna þess
hve vísindalega saga og sorgleik-
ur írsku þjóðarinnar eru rann-
sökuð og hins, hve skemmtilega
og f jörugt rakinn er rauði þráður-
inn í hetjubaráttu Ira gegnum
aldirnar.
Bókin skiptist í 5 aðalhluta og
34 kafla. Skal sagt frá heitum
á aðalhlutum ritsins hér, svo