Réttur - 01.10.1950, Blaðsíða 80
320
RETTUR
menn geti gert sér nokkra grein
fyrir því:
Fyrsti hlutinn heitir „The
Énglish Conquest of Ireland“ og
skiptist í fjóra kafla, hinn fyrsti
um hið forna Irland ættarþjóðfé-
lagsins og baráttu þess, en þrír
þeir næstu um hvernig Englend-
ingar lögðu það undir sig stig af
stigi, byrjandi 1171 með því að
höfðingjar tóku Henry 2. Eng-
landskonung til konungs, líkt og
vér Hákon gamla 1262 og síðan
var smáhert á, unz smiðshögg
var rekið á undirokunina, þegar
Cromwell barði niður uppreisn
Ira 1649, tæpum hundrað árum
eftir að uppreisn Jóns Arasonar
og sona hans beið ósigur á íslandi.
1689—91 var svo enn ein upp-
reisn Ira bælt niður og kúgunin
aukin.
Annar hlutinn heitir: „From
Grattan to United Irishmen“ og
er þar 5. til 11. kafli. Segir þar
frá baráttunni undir forustu
Henry Grattan’s, einkum undir á-
hrifum amerísku byltingarinnar
og hvernig hann hagnýtti kúgun-
arstríð Englendinga gagnvart
uppreisn Bandaríkjanna til þess
að knýja þá til nokkurra endur-
bóta. Síðan segir frá hinni stór-
merku frelsisbaráttu „félagsskap-
ar hinna sameinuðu Ira“ undir
forustu Theobald Wolfe Tone,
einnar beztu frelsishetju Irlands.
Greinir þar frá áhrifum frönsku
byltingarinnar og uppreisninni
1798.
Þriðji hlutinn heitir: „From
O’Connell to young Ireland" og
er þar í 12. til 17. kafli. Er þar
rakin baráttan í enska þinginu
undir forustu O’Connells og end-
ar með frásögninni af hungurs-
neyðinni 1848 og uppreisninni þá.
Það er einkennandi fyrir alla
þessa bók hve vel höfundur rekur
lífskjör alþýðu og sérstaklega að-
stöðu sveitafólksins og þróun
landbúnaðarins.
Fjórði hlutinn heitir: „The
Tenants Right League to the
Fenian Brotherhood“. Þar eru 18.
—22. kafli og segir nú mjög frá
samtökum leiguliðanna, baráttu
bændanna og þjóðfrelsisbaráttu
„Fenia“.
Fimmti hlutinn heitir: „From
Parnell to Easter Week (and
after),“ 23.—34. kafli. Greinir þar
frá baráttunni fyrir heimastjórn
undir forustu Parnells og annari
baráttu Ira á síðari hluta 19. ald-
og og svo að lokum uppreisninni
páskamánudag 1916, ógnarstjórn
Englendinga, myndun írska lýð-
veldisins og borgarastyrjöldinni í
Irlandi og lýkur með valdatöku
De Valera.
Saga írlands er íslendingum
altof lítið kunn. Þessi ágæta saga
af frelsisbaráttu hinnar hraustu
frændþjóðar vorrar á sannarlega
erindi til vor.