Réttur - 01.08.1952, Síða 49
RETTUR
241
kennir honum að sjá fyrir rás óorðinna atburða og beinir honum
brautina til árangursríkrar framkvæmdar meginverkefnanna.
Merkisviðburður í kenningarlegu lífi flokksins er frekari fram-
þróun félaga Stalíns á fræðikenningu Marx og Lenins í riti hans
Efnahagsvandamál sósíalismans í Sovétríkjunum.
Reglur þær og niðurstöður, sem félagi Stalín setur fram í þessu
riti eru sérstaklega þýðingarmiklar vegna þess að með þeim hefst
nýr kafli í þróun marx-lenínskra vísinda og þær eru órjúfanlega
tengdar helztu hagnýtu viðfangsefnunum við uppbyggingu komm-
únisma í Sovétríkjunum. Eins og við vitum breyttu Marx og
Engels sósíalismanum úr draumsýn í vísindi. Hinn mikli Lenín
þroskaði marxismann og kom fram með kenninguna um sósíal-
istiska ríkið og aðferðirnar til að koma á stéttlausu þjóðfélagi í
landi okkar. Flokkur okkar framkvæmdi þessa kenningu undir
forystu Stalíns og vann heimssögulegan sigur: sósíalisminn var
ummyndaður úr hugsjón hinna snjöllustu mannshuga í veruleika.
Sovéfþjóðin byggði upp sósíalisma, og land okkar er komið á stig
þróunar í áföngum frá sósíalisma til kommúnisma.
Þetta hefur fengið flokknum til úrlausnar ný viðfangsefni í
marx-lenínskri fræðikenningu. Hvað þarf að framkvæma til að
búa í haginn fyrir breytinguna frá sósíalisma til komrryínisma?
Hvað þarf að gera til að framkvæma það? Hver eru meginlögmál
þessa merkilega tímabils sögunnar? Jæja, félagi Stalín hefur veitt
okkur skýr og greinargóð svör við þessum aðkallandi og þýðingar-
miklu vandamálum þróunar sovétþjóðfélags okkar, svör sem
varpa birtu yfir þá leið, sem flokkur okkar og sovétþjóðin verður
að ganga.
Það er engum vafa bundið að þing okkar og flokkur okkar í
heild mun fallast á kenningar félaga Stalíns varðandi skilyrði
og aðferðir til að koma í framkvæmd ummyndun stig af stigi frá
sósíalisma til kommúnisma sem baráttustefnuskrá sína fyrir upp-
byggingu kommúnisma. (Hávært og langvarandi lófatak).
Flokkur okkar og öll sovétþjóðin fagnaði af mikilli hrifningu
þessari Stalín-stefnuskrá. Hún ljær ímyndunarafli sovétþjóðar-
innar vængi og fyllir hana innblæstri til að vinna ný hetjuafrek
í þágu hinna miklu hugmynda Leníns og Stalíns. (Lófatak).
Sigursæl sókn okkar eftir leiðinni til kommúnismans mun verða
ótæmandi innblástursuppspretta fyrir verkalýðsstéttina og alla
erfiðismenn í öllum löndum í byltingarbaráttu þeirra. fyrir friði,
lýðræði og sósíalisma.
Þessa sögulegu daga nítjánda flokksþingsins er sovétþjóðin, sem
er sterk í einingu sinni, sameinaðri en nokkru sinni fyrr um sinn
16