Réttur - 01.08.1952, Page 62
254
RÉTTUR
þeir sækjast eftir, íslenzka menn í blóma lífsins til þess að
fórna þeim á altari herguðsins.
Síðan um áramót hafa kröftug mótmæli borizt hvaðan-
æva gegn stofnun hersins. Tíminn komst svo að orði að
mótmælunum „rigndi yfir“. Blöð stjórnarflokkanna hófu
strax undanhald, af ótta við kosningarnar í vor, og reyndu
að draga úr orðum foringja sinna. En töluð orð verða ekki
aftur tekin. Það verður reynt að láta herinn liggja í þagn-
argildi fram að kosningum. En eftir kosningar verður haf-
izt handa um framkvæmdir, nema kjósendur komi í veg
fyrir það með atkvæði sínu.
Amerískur banki á Islandi.
I desember lagði ríkisstjórnin nýstárlegt frumvarp fyrir
Alþingi. Stofna skyldi banka er bæri nafnið Framkvæmda-
banki Íslands á íslenzku, en Iceland Bank of Development
á enska eða ameríska tungu. Hlutverk bankans skyldi vera
með óvenjulegum hætti: Að vera ríkisstjórninni til aðstoðar
í fjárfestingarmálum og hafa með höndum yfirstjórn fjár-
festingar á Islandi, verzla með verðbréf, kaupa hlutabréf
í fyrirtækjum, hjálpa fyrirtækjum til að komast á legg,
hafa samvinnu við einkaaðila, sem ráðast í framkvæmdir
og veita þeim stuðning, greiða fyrir nýjungum og annast
rannsóknir í sambandi við fjárfestingu, og svo að veita
lán til langs tíma og taka lán erlendis. Skal bankanum
heimilt að taka erlend lán með ríkisábyrgð erlendis, án þess
að samþykki Alþingis komi til, allt að 80 milljónum króna.
Ríkið skal leggja bankanum til sem starfsfé Mótvirðis-
sjóð allan og skuldabréf fyrir lánum úr honum. Sömuleiðis
átti bankinn að fá til eignar hlutabréf ríkisins í Áburð-
arverksmiðjunni, Eimskipafélagi Islands og Raftækjaverk-
smiðjunni h.f.
Ekki skyldi „bankinn" hafa á hendi nein afgreiðslustörf,
né nein venjuleg bankastörf. Þau átti Landsbankinn að
annast.