Réttur - 01.01.1961, Page 109
BÉTTUK
109
I.
■ Heimskerfi sósíalismans er meginaflið
sem ákvarðar framvinduna
Aðalsérkenni vorra tíma er
breytingin frá auðvaldsskipu-
lagi til sósíalisma, sem hófst
með sósíölsku októberbylting-
unni miklu. Þetta eru tímar
baráttu tveggja andstæðra
þjóðskipulagskerfa, tímar sósí-
alskra byltinga og þjóðfrelsis-
byltinga, tímar riðandi heims-
valdastefnu og hrynjandi ný-
lenduvaldskerfis, er æ fleiri
þjóðir kjósa sér leið sósíal-
ismans, tímar sigursæls fram-
gangs sósíalisma og kommún-
isma á alþjóðamælikvarða.
Það er höfuðsérkenni vorra
tíma, að heimskerfi sósíalism-
ans gerist nú meginaflið, er
ákvarðar framvindu þjóðfé-
lagsins.
Ósigranlegur styrkur sósíal-
ismans hefur sannazt á undan-
förnum áratugum í tröllauk-
inni baráttu heimanna tveggja,
hins nýja og hins gamla. Til-
raunir heimsvaldasinna og
sóknarsveitar þeirra, fasism-
ans, að stöðva rás söguþróun-
arinnar með vopnavaldi fengu
illan endi. Heimsvaldastefnan
reyndist þess vanmegnug að
stöðva hinar sósíölsku bylting-
ar í Evrópu og Asíu. Sósíal-
isminn er nú orðinn heims-
kerfi. Heimsvaldasinnar
reyndu að hamla efnahagsþró-
un sósíölsku landanna, en
vélabrögðum þeirra varð
hnekkt. Heimsvaldasinnar
gerðu allt, er þeir máttu, til
að halda í nýlendukúgunar-
kerfið, en það er nú eigi að
síður að hrynja til grunna.
Eftir því sem heimskerfi sósí-
alismans eflist, breytast al-
þjóðaaðstæður í hag þeim
þjóðum, sem berjast fyrir
sjálfstæði, lýðræði og þjóð-
félagsframförum.
Um þessar mundir eru það
heimskerfi sósíalismans og öfl
þau, er berjast gegn heims-
valdastefnunni, en fyrir þjóð-
félagsbreytingu í sósíalska átt,
sem kveða á um aðalinntak,
aðalstefnuhneigð og aðalsvip-
mót þjóðfélagsþróunarinnar.
Hvað sem heimsvaldasinnar
kunna til bragðs að taka, þá
mun þeim ekki lánast að
stöðva framvindu söguþróun-
arinnar. Lagður hefur verið
traustur grundvöllur að nýj-
um stórsigurvinningum sósíal-
ismans. Fullnaðarsigur hans er
óhjákvæmilegur.
Þjóðfélagsþróunin. sannar
það, sem Lenín sagði fyrir, að
lönd hins sigursæla sósíalisma
myndu aðallega orka á gang
heimsbyltingarinnar í krafti
efnahagsþróunar sinnar. Sósí-
alisminn hefur unnið einstæð
afrek um framfarir í iðnaði,
vísindum og tæknifræðum og
um stofnun hins nýja, frjálsa