Réttur - 01.01.1961, Blaðsíða 127
RÉTTUR
127
ur eru teknar að falla. Hún
verður að eflast dag frá degi.
Það er meginatriði, að höft séu
lögð á árásaraðiljann í tæka
tíð, svo að fyrir það sé girt,
að til styrjaldar geti komið.
Barátta fyrir friði táknar
á vorum dögum það að vera
vel á verði, ástunda að fletta
ofan af fyrirætlunum heims-
valdasinna, hafa jafnan vak-
andi auga á launráðum og véla-
brögðum stríðsglæframanna,
blása að glæðum heilagrar
reiði þjóðanna í garð þeirra,
sem stunda á styrjöld, vinna
sem bezt að skipulagningu
friðaraflanna, efla jafnt og
þétt friðarbaráttu fjöldans og
styrkja samvinnutengsl við öll
þau lönd, sem ekki telja sér
hag að nýjum styrjöldum. í
löndum, þar sem heimsvalda-
sinnar hafa komið sér upp
herstöðvum, ber að herða
baráttuna fyrir afnámi þeirra
stöðva. Það er nauðsynlegur
þáttur í viðleitninni að efia
þjóðfrelsi, vernda fullveldi
þjóða og koma í veg fyrir
styrjöld. Baráttu þjóða móti
hervæðingu landa sinna skyldi
tengja baráttunni móti einok-
unarauðhringunum, sem ná-
komnir eru heimsvaldasinnum
Bandaríkjanna. Um þessar
mundir er mikilsverðara en
nokkurn tíma áður að berjast
sem ósleitilegast í öllum lönd-
um heims fyrir síauknum á-
hrifum friðarhreyfingarinnar í
borgum og þorpum og meðal
vinnandi fólks í verksmiðjum
og skrifstofum.
Friðarhreyfingin er víðtæk-
ust hreyfing vorra tíma. Hún
tekur til manna margvísleg-
ustu stjórnmála- og trúmála-
skoðana og ýmislegustu þjóð-
félagsstétta, sem allir samein-
ast í þeirri göfugu viðleitni að
fá afstýrt nýjum styrjöldum
og tryggt mannkyninu frið til
frambúðar.
Efling hins sósíalska heims-
kerfis er meginskilyrði þess,
að frambúðarfriður megi hald-
ast. A meðan ekki tekst að fá
afvopnunarmálinu framgengt,
hljóta sósíölsku ríkin að halda
varnarmætti sínum við hæfi.
■ Herstöðvar í löndum annarra þjóða
verði afnumdar og herir fari burt
Það, sem fyrst af öllu ber
að gera, til þess að friður megi
verða tryggður, er að dómi
kommúnista þetta: Stöðva víg-
búnaðarkappið, banna kjarn-
orkuvopn, framleiðslu þeirra
og tilraunir með þau, afnema
herstöðvar í annarra þjóða
löndum og kveðja þaðan allar
erlendar hersveitir, leggja nið-
ur öll hernaðarsamtök, gera
friðarsáttmála við Þýzkaland,
breyta Vestur-Berlín í óvopn-
að frjálst borgríki, hnekkja á-
rásarfyrirætlunum vestur-
þýzkra hefndarstríðssinna og