Réttur - 01.01.1961, Blaðsíða 152
152
R É T T U B
tæku starfi til framkvæmdar
kommúnismanum, er allri
heimshreyfingu kommúnismans
ómetanlega mikils virði. í for-
dæmi Kommúnistaflokks Ráð-
stjórnarríkjanna og bróður-
legri samhyggju hans kemur
fram byltingarsinnuð alþjóða-
hyggja öreiganna í reynd og
verki, sem er öllum öðrum
kommúnistaflokkum háleit
hvatning í baráttunni fyrir friði
og sósíalisma. Hinar hejms-
sögulegu ályktanir 20. þings
Kommúnistaflokks Ráðstjórn-
arríkjanna eru eigi aðeins
stórmikilvægar fyrir hann
sjálfan og framkvæmd komm-
únismans í Ráðstjórnarríkjun-
um, heldur hafa þær einnig
markað þáttaskjl í sögu hinn-
ar kommúnísku heimshreyfing-
ar og stuðlað að framþróun
hennar á grundvelli marxisma
og lenínisma.
Allir flokkar kommúnista og
verkamanna leggja sitt af
mörkum til framþróunar hinni
miklu fræðikenningu marxisma
og lenínisma. f samhjálp og
gagnkvæmri aðstoð hinna
marx-lenínsku bróðurflokka
birtist einnig byltingarsinnuð
alþjóðahyggja öreiganna í
reynd og verki.
Hugmyndafræðilegum mál-
efnum bera að gefa sérstakan
gaum um þessar mundir. Arð-
ránsstéttin reynir að spyrna á
móti sigurvinningum sósíalism-
ans með því að leggja síaukið
kapp á að halda hugmynda-
stefnu sinni að fjöldanum og
færa hann i andlegar viðjar
borgaralegs hugsunarháttar.
Kommúnistar telja það hlut-
verk sitt að sækja ejnarðlega
fram á hinum hugmyndafræði-
legu vígstöðvum, kappkosta að
leysa fjöldann úr andlegri á-
nauð hvers kyns borgaralegra
hugmynda, svo og skaðvænna
áhrifa endurbótastefnunnar, og
boða honum hugmyndir, er til
framfara horfa og greiða mega
fyrir samfélagsþróuninni, —
hugmyndir frelsis, lýðræðis og
vísindalegs sósíalisma.
Reynsla söguþróunarinnar
sýnir, að leifar auðvaldsskipu-
lagsins geta varðveitzt lengi í
hugum manna, jafnvel eftir að
sósíalskir þjóðfélagshættir eru
komnir á. Þessi staðreynd
krefst víðtækrar og marghátt-
aðrar starfsemi af hálfu flokks-
ins í því skynj að þroska
fjöldann að kommúnískum
hætti og þjálfa og stæla starfs-
lið flokks og ríkis ennþá betur
en áður í anda marxisma og
lenínisma.
Kenning marxisma og lenín-
isma er stórfenglegt, bylting-
arsinnað fræðikerfi einnar
heildar, leiðarljós verklýðs-
stéttarinnar og alls vinnandi
fólks um gervallan heim á sér-
hverju stigi hinnar miklu bar-
áttu þess fyrir friði, frelsi og
betra mannlifi og framkvæmd
kommúnismans, hins réttlátasta
þjóðfélagsskipulags. Hinn mikli
byltingarsinnaði sköpunarmátt-
ur hennar er fólginn í því, að
hún er í órofa tengslum við