Réttur - 01.08.1961, Síða 42
BJÖRN JÓNSSON:
Til varnar lífskjörum og lýðræði
Útvarpsrœða, jlatt við umræður um vantraust á ríkisstjórnina
25. október 1961.
Nú eru nær þrjú ár liðin frá því er núverandi stjórnarflokkar tóku
höndum saman um stjórn landsins og tvö ár frá valdatöku núverandi
ríkisstjórnar. Þessum flokkum hefur því gefizt ærinn tími til þess að
sanna, með verkum sínum, vilja sinn og getu sína til þess að ráða
fram úr vandamálum íslenzks efnahagslífs með sín stóru fyrirheit
um stöðvun verðbólgu og bætt lifskjör að leiðarljósi. Um það verð-
ur ekki deilt að þeir hafa haft valdið, tímann og tækifærin. Spurn-
ingin er sú ein, hvernig þeir hafa notað vald sitt og hver árangurinn
hefur orðið.
Þegar litið er yfir valdatímabil stjórnarflokkanna blasir við ein
staðreynd öllum öðrum augljósari, sú að hver athöfn þeirra, sem
nokkru verulegu máli hefur skipt hefur leitt af sér versnandi lífs-
kjör, að sá reginmunur til hins verra, sem orðinn er á launakjörum,
verðlagi og tekjuskiptingu, fyrir launastéttirnar, verður í einu og
öllu rakinn beint til athafna og aðgerða stjórnarflokkanna. Önnur
er sú, að þann dag í dag halda lífskjör almennings áfram að versna
hröðum skrefum, að hver verkamaður, hver launamaður, finnur
með hverjum degi, sem líður, hramm óðaverðhækkana leggjast æ
þyngra á herðar sér, á afkomu sína, á vonir sínar um bærilegt líf.
Fyrsta skref stjórnarflokkanna í efnahagsmálum voru hin svo-
kölluðu niðurfærslulög í ársbyrjun 1959. Með þeim var allt kaup-
gjald fært niður um 13.4% að krónutölu þvert ofan í gilda samn-