Réttur - 01.01.1964, Side 62
62
R E T T U R
breska auðfélagið The Dritish Aluminium Company. Rekstur fé-
lagsins er í Eydehavn og Tyssedal. Félagið á meirihluta hlutafjár
í Hardanger Jern- og Staalværk.
Auk þessara ítaka brezka aluminiumhringsins, ræður hann
Stangfjord Elektrokemiske Fabrikker og Vigelands Brug í Kristian-
sand.
Eins og sjá má af þessari upptalningu, er liinn ameríski alþjóða-
hringur ALCOA og Altd drottnandi í Noregi sem annars staðar
í auðvaldsheiminum.
Eftir stríð hefur aluminiumiðnaðurinn verið aukinn mjög í
Noregi.
I fyrsta lagið hefur ríkið eignast tvö stórfyrirtæki í þessari grein:
A/S Ardal og Sunndal Værk. Höfðu Þjóðverjar byrjað á þessu í
stríðinu. Þessi ríkisfyrirtæki eru þó að nokkru bundin ameríska
aluminiumhringnum sakir amerískra lána. Þau verða að kaupa
allt aluminiumoxyd sitt frá Altd, Kanadahringnum, og borga í
fullunnu aluminium, og mega ekki koma upp eigin framleiðslu á
aluminiumoxyd.
Árið 1958 var svo myndað nýtt hlutafélag: Mosjöen Aluminium
A/S. Hlutaféð er 25 milljónir norskra króna. Þriðjung þess á
Aluminium-Industrie-Aktien-Gesellschaft í Sviss. Það félag á verk-
smiðjur víða um lönd og sækist nú eftir aðstöðu á íslandi. En
eins og kunnugt er, þá hefur hið alþjóðlega hringavald oft mikið
af auðmagni sínu í Sviss af skattaástæðum o. fl., en leitar þaðan
ítaka í mörgum löndum.
Utlenda auðvaldið er, eins og sjá má af þessu, mjög sterkt í
aluminium-iðnaðinum í Noregi. Og stóraukning er að gerast á
þessu sviði:
Norsk Aluminium Company og dólturfélag þess Nordisk AL-
uminiumsindustri eru að stækka fyrirtæki sín mjög mikið og bæta
við nýju hlulafé.
I Husnes í Kvinn-héraði á að byggja aluminiumfyrirtæki, er kost-
ar um 500 miiljónir norskra króna. Helminginn af hlutafénu í því
á fransk-svissneskt hlulafélag að eiga. Það lieitir Compadec & AIAG.
En þetta AIAG er hið þegar nefnda Aluminium-Industrie-Aktien-
Gesellschajt í Ziirich, sem þegar á aðalítökin í Mosjö-verksmiðj-
unni.
En við framkvæmdina á þessu máli gerðist það hneyksli, sem
mikið hefur verið rætt um í norska stórþinginu, að binn helmingur